Skinfaxi - 01.11.1929, Síða 16
112
SKlNFAXl
Frá fjelögum og fjelagsháttum.
Hjeraðssamb. Umf. Eyfirðinga
hefir á sfnutn vegum kennslu 1 iþrótlum og vikivökum. Ármann
Dalinannsson iþróttakennari ferðast um milli fjelaganna, og heldur
einnar til tveggja vikna nátnskeið fram til hátíða, og ef til vill lengur.
Hjeraðssamb. Umf. Dalamanna
hefir s. 1. sutnar lagt stund á tnikið stórvirki. Er það sundlaug
sú, er Hjeraðssambandið hefir i byggingu að Laugutn í Hvamms-
sveit. Stærð laugarinnar sjálfrar er 12 stikur að lengd og 4l/._ að
breidd, — Áfastar við laugina verða svo byggingar þær, sem nauð-
synlegar eru fil starfrækslu, svefnfiýsi, borðstofa, eldhús, kennara-
herbergi, geymsla, bað og búningsklefar o. s. frv.
Láugin er ger eftir uppdrætti Jóhanns Kristjánssonar bygginga-
meistara (sem er gamall ungmennafjelagi). Er áætlað, að hún muni
kosta fullger 22 þúsund króna, og telja glöggir menn að hún muni
verða fullkoinnasta sundlaug, sem enn er bvggð f sveitum hjer á
landi.
Umf. Dögun á Fellsströnd
í Dalasýslu lieíir byggt sjer íundarhús s. 1. sumar. Húsið er
byggt í sameign við sveitaríjelagið og kvenfjel. „Hvöt“. Stendur
húsið austan við túnið á Staðarfelli. t>að er steinsteypt nieð járn-
þaki, og er 14X9 álnir að stærð,
Ordsendingar.
SKATTAR. Fjelögin eru mint á, að greiða skatta sina fyrir
árið 1929 hið fyrsta. Senda má skattinn hvort heldur til Sambands-
ritarans (afgreiðslu Skinfaxa) á ísafirði, ellegar til Sambandsfjehirðis,
Sig, Greipssonar í Haukadal.
SKÝRSLURNAR eru fjelögin beðin að senda hið fyrsta eftir
áran ótin, eins og áður er áminnst. — Skýrslur og upplýsingar er
dregist hefir að senda frá fyrra ári, sendist hið fyrsta.
VIKIVAKAIÐKANIR og fþrótta, (einkuin glfihu) eru fjelögin
hvött til að láta Sainbandsstjórn fá vitneskju um, samkvæmt orð-
sendingu t 6. hefti.
Guðm. frá Mosdal.