Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1930, Blaðsíða 1

Skinfaxi - 01.02.1930, Blaðsíða 1
Skinfaxi 2. 1930. Húsdrápa. Sungin við vígslu samkomuhúss U. M. F. Geisla, að Hólmavaði i Aðaldal. Hér berumst vér i'yrir með bólstaðinn þann, er byggðin sér reisti, og flokkumst um liann, við einkennin skýrustu: ána sem rann, sinn eldgamla feril, um jörð þá, er brann. Við ána, sem mýkti það eldrauna íar, er öll þessi byggð var sem lemstraður nár. Sem enn er að græða þau örkumla sár, með afrekin fögur, en glæstari spár. Hér berumst vér fyrir með lög vor og ljóð og leiki’ og skemmtanir, fjör vort og glóð. Við syngjandi árinnar eldrauna slóð er altari vigt fyrir kapp vort og móð. Við bér munum standa og stengja vor heit, að styrkja og upphefja lýð vorn og sveit, að árinnar dæmi, þvi al])jóð það veit að urðirnar bér gerði’ hún skrúðgrænan reit. Við hér munum safnast er hamingju blær um huga vorn leikur, og blómskrúðið grær. Við liér munum standa’, er í harðbakkann slær og lnigsa vort ráð, þegar vandinn er nær.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.