Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1930, Side 13

Skinfaxi - 01.02.1930, Side 13
SKINFAXI 37 miklir eru málamenn og liafa gott vit á slíkum hlutum. Mætti nefna dæmi þcss, en slíkt er óþarft. — Þar sem málið er eitt af höfuðeinkennum liverrar þjóð- ar, er ekki lítið unnið með þvi, fyrir hverja einstaka þjóð, að það sé sem fegurst og fullkomnast; og þar sem við íslendingar eigum því láni að fagna, meg- um við telja það mjög mikils vert. Þar sem við cig- um svo mjög fullkomið mál, á það að vera okkur hvöt til þess, að læra það sem hezt og varðveita það fyrir öðrum ómerkari málum, t. d. dönsku. Ef við gerum það ekki, ber það vott um, að við séum ekki færir um að eiga dýrmætan gimstein, né meta það, sem gott er. Og mikil skömm væri það okkur íslend- ingum, að lýna máli okkar nú, einmitt eftir að það liefir lifað af öll þau mein og allar þær hörmung- ar, sem yfir þjóð okkar liafa dunið. Ank þess, sem við eigum fornritliöfundum okkar það að þakka, að þeir áttu drýgstan þátt í því, að við týndum ekki máli okkar, eigum við þeim að þakka, að við eigum dýrgrip, sem ekki verður til verðs metinn, en það er fornbókmenntir okkar: Eddur og íslendingasögur og fleiri gullvæg rit. Eddurnar eru tvær: Sæmundaredda og Snorraedda. Sæmundar- cdda, eða ljóðaedda, er safn af fornum goðakvæðum, sem talin eru ort vera á 10. og 11. öld, cn færð í eina heild um miðja 12. öld. Orðið edda telja sumir eiga eitthvað skylt við orðið óður. Vafamál er það talið, livort kvæði þessi séu ort á íslandi; hafa verið mjög skiftar skoðanir um jiað meðal fræðimanna. Þó er mjög líklegt, að þau séu flest á íslandi ort, eins og líka margir fræðimenn álíta. En hvað sem þvi líður, er það þó Islendingum að þakka, að kvæði þessi hafa geymst fram á þenna dag. Ókunnugt er mönnum al- veg um höfunda kvæðanna né safnanda, nema talið er víst, að Sæmundur fróði standi- í engu sambandi við þau, eins og nafnið hendir þó til. Eddukvæðin eru

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.