Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1958, Blaðsíða 21

Skinfaxi - 01.02.1958, Blaðsíða 21
SKINFAXI 21 /fifform f^oróteinn éJinaróóon : Ungmennafélögin og skíðin Þegar á fyrstu starfsárum ungmenna- félaganna hér á landi störfuðu þau að eflingu skíðaíþrótta. Mun það rétt vera, að fram til 1914, að Skiðafélag Revkja- víkur var stofnað, liafi þau ein félög unn- ið að eflingu skiðaíþrótta. Þegar á fyrsta starfsvétri Umf. Reykjavíkur aflaði það 15 skíðapara frá Noregi. Þá réðst það í það stórvirki að gera skíðabraut vestan Öskjuhíiðar og vann að grjótruðningi í 8 ár. Enn fremur má nefna slarf Umf. Ár- vakurs á ísafirði, sem gekkst þar fyrir skíðakennslu í nokkra vetur og réðst i það heillaverk að fá hingað norska skíða- kennarann Helge Torvö. Segja má, að ungmennafélögin tækjn upp þráðinn, sem niður féll um 1790, þá er lauk þeirri skíðakennslu í Suður-Þing- eyjarsýsln, sem hafin var fyrir tilstilli hins danska konungsvalds — og Norð- maðurinn N.Buch fékk 8 ríkisdala verð- laun fyrir „að hafa á margan máta fram- ið og upphvatt skíðaferðir“. Það er því vel við hæfi, að Skinfaxi hvetji ungmennafélögin lil þess að efla skíðaíþróttir i byggðarlögum sinum og að þau vinni að því, að sem flestir læri að minnsta kosti þau atriði, sem meðfyigj- andi myndir sýna. 1. mynd: Skíði eru talin við liæfi þess, sem ætlar að nota þau, ef lengd þeirra samsvarar seilingu hans. — Skíðastafir eiga að vera 10—15 cm lengri en mjaðm- arhæð notanda. 2. mynd: Til þess að áhurður tolli vel neðan á skíðunum, þurfa skíðin að vera þurr. Bezt er að hera á innanhúss i venju- legiim stofuhita. Það horgar sig að hera vandlega á skíðin. Séu skiðin vel smurð, eykst ánægjan og gangurinn léttist. Einn- ig verndar það skiðin gegn sliti og skemmdum. 3. mynd: Skíðin er hægt að hera í hönd- unum eða á öxlum. Ef þú herð skíðin i höndum, þá stingtu handföngunum und- ir táólarnar, en kræktu þrúgunum á skíðaoddana. Séu skíði borin á öxlum, er gott að hera þau á annarri öxlinni en stafina á hinni og stinga stöfunum undir skíðin — skiði og stafir þá lcrosslögð. 4. mynd: Áður en sldði eru spennt á fætur, slcal lireinsa snjó og is undan skó-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.