Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1959, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.02.1959, Blaðsíða 6
6 SKINFAXI í skóginum skammt frá Tryggvatré. Rík- arður Jónsson myndhöggvari réð gerð varðans og gerði vangamyndina, sem á honum er, allt án endurgjalds. Þannig minntist hann vinar síns Aðalsteins og Furur I Þrastaskógi. sýndi ungmennafélögunum frábæra vin- semd og höfðingsskap. UMFl og einstök ungmennafélög hafa lagt fram mikla vinnu og fjármagn til Þrastaskógar af litl- um efnum, en duga skal þó betur. Verk- efnin eru nóg. Sambandsstjórn liefur farið þess á leit við stjórn Skógræktarfélags Islands, að UMFl njóti styrkja og fyrirgreiðslu vegna skógræktar í Þrastaskógi á sama hátt og skógræktarfélögin, en hún telur sér ekki fært, vegna ákvæða í lögum, að verða við þeirri beiðni. Ekki virðist þó ósanngjarnt, að skógrækt í Þrastaskógi njóti sömu fjár- hagsaðstoðar og viðurkenningar frá hinu opinbera og. skógrækt annars staðar á landinu. Slcógræktarfélögin njóta styrkja til girðinga og fá afslátt á plöntum. Skóg- arverðir eru launaðir af hinu opinbera, en UMFl greiðir laun til skógarvarðar, sem starfar í Þrastaskógi yfir sumarmánuðina. Samkvæmt samþykkt sambandsráðs- fundar UMFl 1958 hefur stiórn UMFÍ sótt um styrk tií Alþingis vegna skógræktar í Þrastaskógi. Ungmennafélög í nágrenni við skóginn hafa unnið þar að gróðursetn- ingu, og nokkur hafa sent skrifstofu UMFl myndarlegt framlag til hans, og ber að þakka það. Það væri glæsilegur vitnisburð- ur um áhuga og félagsþroska ungmenna- félaga, ef hvert einasta félag á landinu legði sérstaklega af mörkum nokkra fjár- uppliæð til þess að koma upp myndarleg- um trjágróðri í Þrastaskógi, t. d. 5—10 krónur frá hverjum félagsmanni. Fyrir þá uppliæð væri mikið hægt að gera. Margt smátt gerir eitt stórt. Mörg fjárfrek verkefni híða fram- kvæmda i Þrastaskógi. Árleg gróðursetn- Börn I „lundi nýrra skóga" 1958. Myndin frá 1958. ing þarf að aukast verulega. Koma þarf upp íþróttaleikvangi og prýða umhverfis styttu Aðalsteins Sigmundssonar. Þá þyrfti

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.