Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1959, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.02.1959, Blaðsíða 9
SKINFAXI 9 að falli. Hann fékk of lítinn styrk til að reka einkaskóla í sveit. Taldi þá Sigurður sér ekki fært að lialda rekstrinum áfram, flutti til Reykjavíkur og andaðist þar nokkrum árum síðar. Skólahugsjón Sigurðar var vinsæl í Borgarfirði. — Ungmennafélagshreyfingin var mjög öflug í héraðinu, og sumir af áhugamönnum ungmennafélaganna voru, þegar liér var komið, orðnir þar miklir ráðamenn. Nokkrir þeirra mynduðu félag til að bjarga Hvítárbakkaskóla frá upp- lausn. Kunnugastir voru mér í þeim lióp Andrés Eyjólfsson í Siðumúla, Davíð Þor- steinsson á Arnbjarnarlæk, Guðmundnr Jónsson á Hvítárbakka og Jón Hannesson í Deildartungu. Hvítárbakkafélagið fékk marga dugandi menn til forstöðu og kennslu við skólann fram undir 1930. Einn af eigendum skól- ans, Guðmundur Jónsson, bjó myndarbúi á skólastaðnum, og var skólanum mikill styrkur af lieimilisforstöðu þeirra Hvítár- bakkahjónanna. Á þessu tímabili var hér- aðsskólahrevfingin að festa rætur á Islandi. Árið 1923 veitti Alþingi tiltölulega rausn- arlega fjárhæð til að gera vandað skóla- hús á Laugum í Reykjadal; viðunanlegur styrkur var veittur til kennslunnar, miðað við það, sem áður var í tíð Sigurðar Þór- ólfssonar á Hvítárbakka. Þá veitti Alþingi fé til að reisa yfirhyggða sundlaug fyrir nemendur Laugaskóla. Öll liús skólans voru hiluð með hveravatni, og var þá lagt inn á nýja leið, bæði umfyrirkomulag ungmenna- skólanna og með notkun jarðhita. Með þessum orkugjafa mátti liúsa ungmenna- skólana betur en áður var og koma við miklu fjölhreyttari íþróttakennslu heldur en áður þekktist við skóla liér á landi. For- göngumenn Hvítárbakkaskóla fundu, að skólastaðurinn var ekki heppilegur lil langframa. Þar var ekki jarðhiti og erfitt um samgöngur í héraðinu. Forgöngumenn ungmennafélaganna í Borgarfirði höfðu bjargað skólamálum tiéraðsins yfir erfið ár og vildu nú gjarnan þiggja aðstoð mann- félagsins til endurbóta á liúsakosti og skipulagi Hvítárabakkaskóla. Um þær mundir fór ég með stjórn kirkju- og kennslumála í nokkur misseri. Hófst þá samvinna inilli min og eldri og yngri manna í Borgarfirði um að flytja Hvítárhakkaskóla að Reykholti. Sá stað- ur lá vel við í héraðinu, var auk þess lielg- aður mikilli sögufrægð. I.andkostir voru þar góðir, jarðhiti mikill og auðfenginn. Prestaskipti urðu i Reykholtsprestakatli um þessar mundir, og var Reyklioltspresta- kall auglýst með takmörkuðum jarðar- hlunnindum fyrir næsta prest. Með því móti var skólanum tryggt ódýrt og gott jarðnæði, en prestinum ætlað nægilega mikið land fyrir búskap, ef liann vildi því sinna. Árið 1929 samþykkti Alþingi stofn- lög héraðsskólanna. Voru þeim þar tryggð fjárframlög úr ríkissjóði til bygginga og stuðningur við reksturinn í samræmi við tölu nemenda, sem sóttu skólann. Guðjón Samúelsson, húsameistai’i ríkisins, gerði uppdrátt að Reykholtsskóla eins og hann er nú. Hafði varla sézt jafn glæsileg bygging í sveit á Islandi. Stjórn Jóns Magnússonar liafði ætlað að endurbyggja Reykliolt með öðrum hætti og byggt þar steinfjós og hlöðu. Síðan skyldi bærinn fylgja í forn- um stíl. En nú var þessu skipulagi hreytt, því að bezta hússtæðið var einmitt þar, sem húið var að reisa peningsliúsin. Voru

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.