Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1959, Blaðsíða 25

Skinfaxi - 01.02.1959, Blaðsíða 25
SKINFAXI 25 fæ aldrei aðra eins konu. Verið þið ekki að reyna að hugga mig, því að þetta er dagsatt.“ Og liann hélt áfram að lirista höfuðið og yppta öxlum, líkt og ógæfan livíldi á lionum eins og farg. „Þú verður nú ekki í vandræðum með að fá þér aðra konu,“ sagði Líkódíana í huggunartón. „Ég hugsa þú þurfir ekki annað en svipast um og ákveða þig.“ „Nei, nei!“ hvein í Menó, og hann hengdi höfuðið eins og múlasni. „Ég fæ aldrei konu, sem er liennar jafningi. Héðan af verð ég ekkill. Það megið þið hóka.“ „Vertu nú ekki að því arna,“ mótmælti Sigdóra. „Það er ljótt af þér að segja ann- að eins og þetta. Þú verður að ná þér í konu, þó ekki væri nema vegna þessa móðurleysingja, sem liérna er. Hver ætti ananrs að hugsa um hana, þegar þú ert úti á túni eða akri? Þú ætlar henni þó víst ekki að ráfa út og inn í algeru reiðu- ieysi ?“ „Bentu mér á konu, sem jafnist á við þessa, sem skirrðist við að þvo sér til þess að óhreinka ekki vatnið. Og hún liugsaði betur um slcepnurnar og amboðin en úr- vals vinnumaður og snerist í kringum mig eins og skopparakringla. Ég þurfti ekki heldur að óttast, að hún gripi einu sinni til sinna þarfa baunahnefa úr sigtinu, og aldrei kom það fyrir, að hún rétti fram höndina og segði: Gefðu mér nú! Þá held ég liún færði mér heimanfvlgju, sem er gulls ígildi! Og nú verð ég að skila því öllu til föður hennar, af því að við vor- um barnlaus. Hann var einmitt að segja mér það áðan, skrúðhúsmaðurinn, sem kom með vigða vatnið. Eða livað henni þótti vænt um telpuhnokkann, sem hún sagði að minnti sig svo á vesalinginn liana systur hennar. Ef ég hefði átt konu, sem ekki hefði verið móðursystir telpunnar, þá hefði hún liaft horn í síðu þessa móður- leysingja.“ „Ef þú tækir þessa dóttur Nínós, sem eftir er, þá mundi allt verða með himna- lagi, hæði með tilliti til heimanfylgjunn- ar og telpunnar,“ sagði Likódíana. „Þú þarft ekki að segja mér það, en vertu eklci að jamla á þessu við mig, því að mér finnst eins og munnurinn á mér fyllist af galli, þegar þú nefnir það.“ „Það á lieldur ekki við að vera að tala um svona núna,‘“ sagði Sigdóra, sem fannst hún verða að liðsinna mannaumingjanum. „Svona, Menó, fáðu þér nú heldur í svang- inn en að híma svona, því að þú ert all- ur af manni genginn.“ „Nei, nei!“ emjaði Menó á ný. „Nefndu ekki mat við mig. Það er eins og hálsinn á mér hafi verið troðinn út af einhverjum óþverra.“ Sigdóra tók koll og setti fyrir framan hann, lét á kollinn heitt brauð, svartar olífur, geitaost og vínflösku. Og vesaling- urinn tók að næra sig, fór sér mjög liægt, sat þarna rólegur og tautaði fyrir munni sér ósköp armæðulegur á svipinn. „Enginn hakaði önnur eins brauð og liún, blessuð manneskjan,“ sagði liann hrærður. „Þau voru á bragðið eins og þau væru úr hreinu hveiti! Og úr jurtum, sem hún tíndi úti um hagann, bjó hún til súpu, sem var svo góð, að maður saug á sér fingurna, þegar maður var búinn af diskinum. Nú verð ég að kaupa brauð lijá hölvuðum okraranum honum Púddó, og ekki mundi svo vel, að ég fengi lieita súpu, þegar ég kem heim eins og hundur af sundi dreginn. Ég má skríða ofan undir

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.