Skinfaxi - 01.02.1959, Side 20
20
SKINFAXI
Hástökk kvenna:
1. Guðrún Sigurðardóttir, UMF Reykhverfingi
1,25 m.
100 m. bringusund:
1. Valgarður Egilsson, UMF Magna 1:23,5 mín.
100 m. frjáls aðferð:
1. Valgarður Egilsson, Umf. Magni 1:20,4 mín.
4x50 m. boösund:
1. Sveit UMF Reykhverfings á 2:31,0 mín.
UMF Efling, Reykjadal, vann mótið og hlaut
81 stig. UMF Reykhverfingur fékk 35 stig,
UMF Magni 24 stig, UMF Geisli 23 stig, UMF
Bjarmi 17 stig, UMF Mývetningur 14 stig og
UMF Gaman og alvara 8 stig.
Mótið var vel sótt og í alla staði hið ánægju-
legasta, en veður var fremur kalt, og voru
árangrar ekki eins góðir þess vegna. Iþrótta-
áhugi virðist vera mikill í héraðinu, en vegna
fólksfæðar lítill tími til æfinga.
Héraðsmót U.N.Þ.
var haldið að Ásbyrgi þann 27. júlí s.l. Mótið
hófst með guðsþjónustu, sr. Páll Þorleifsson
prófastur að Skinnastað prédikaði. Síðan flutti
Jóhann Skaftason, sýslumaður, ræðu, og Jó-
hann Konráðsson söng með undirleik Jakobs
Tryggvasonar.
Síðan hófust íþróttir, og urðu helztu úrslit
þessi:
800 m. hlaup:
1. Brynjar Halldórsson, Ö. 7:23,9 mín.
Kringlukast:
1. Heimir Gíslason, N. 31,64 m.
100 m. hlaup:
1. Brynjar Halldórsson, Ö. 12,5 sek.
Kúluvarp:
1. Aðalgeir Jónsson, Ö. 10,96 m.
Þrístökk:
1. Brynjar Halldórsson, Ö. 13,05 m.
UMF Öxfirðinga vann mótið með 31 stigi,
UMF Leifur heppni hlaut 8 stig og UMF Núp-
sveitunga hlaut 5 stig. Stighæstur einstaklingur
var Brynjar Halldórsson, Ö., með 18 stig. -
Einnig var .keppt í knattspyrnu milli austan-
heiðar- og vestanheiðarmanna, og varð jafi>
tefli 2:2. Gunnlaugur Sigurðsson og Grímur
Jónsson stjórnuðu keppninni. Veður var þurrt
en kalt og völlurinn blautur eftir undangengn-
ar rigningar.
Frjálsíþróttamót U.Í.A.
Frjálsíþróttamót Ungmenna- og íþróttasam-
bands Austurlands var háð í Stöðvarfirði sunnu-
daginn 14. sept. Er það í fyrsta skipti, sem slíkt
mót er haldið þar, og var það gert í tilefni
30 ára starfs. Keppendur voru frá 4 félögum
og 18 alls.
Úrslit urðu þessi:
100 m. hlaup:
1. Birgir Sveinsson, Þróttur, 12 sek.
Víöavangshlaup:
1. Bergur Hallgrímsson, Skrúður 10,30.
Langstökk:
1. Sveinn Jóhannsson, Þróttur 5,90.
Hástökk:
1. Björn Þorsteinsson, Árvakur 1.50.
Þristökk:
1., Björn Þorsteinsson, Árvakur 12,33.
Kúluvarp:
1. Már Hallgrímsson, Skrúður 10,64.
Kringlukast:
1. Birgir Sveinsson, Þróttur 30,30.
Spjótkast:
1. Jón Helgason, UMFS 41,06.
Stighæstur einstaklinga var Birgir Sveins-
son, íþróttafélaginu Þrótti, með 16 stig. Fyrir
það hlaut hann verðlaunabikar, sem Bergur
Hallgrímsson gaf í fyrra. Birgir hlaut einnig
Vilhjálmsbikarinn, en hann er veittur þeim, er
vinnur bezta afrekið, en að þessu sinni var það
100 m. hlaup Birgis á 12 sek. sléttum.
Stigatala félaganna var þannig:
Þróttur 38 stig
Skrúður 25 —
Árvakur 14 —
UMFS 11 —