Skinfaxi - 01.11.1960, Blaðsíða 17
SKINFAXI
113
JOLAHVALIJR IMABLANIMA
nc^ a óöcju
Uerje Stu
ti^en
Snemma morguns á miðri jólaföstu
vaknaði Nausta-Pétur og leit út um
gluggann. Og hræddur varð hann svo um
munaði.
„Manga, Manga, flýttu þér manneskja!
Komdu hérna og segðu mér, hvort þú sérð
það, sem ég sé!!“
Það var ekki oft, sem stórviðburðir gerð-
ust á Naustum, og Margrét var því ekki
lengi að snarast fram úr og vinda sér út
að glugganum.
„Guðmundur minn og hún Gróa!“ hróp-
aði hún andagtug eins og undir likræðu,
„liver ósköpin heldurðu að þetta geti ver-
ið?“
„Jú, ])að get ég sagt þér, konukind,“
svaraði Pétur og var beinlínis hátíðlegur.
„Það er hvalur, kelli mín, þetta, sem þú
sérð. Okkur hefur harasta iilotnazt hval-
reki í nótl. Skilurðu, livers virði það
mundi vera okkur ■— lia?“
.Tú, Manga hafði hugmynd um, að þetta
mundi vera meiriliáttar happ.
„En heyrðu mig, Pélur minn. Það þarf
einhver lifandis ósköp af salti í svona
skepnu. Og ekki eigum við börn, sem geti
úðað í sig, þegar við erum komin í mát.“
„Æ, æ, æ, — það má nú segja, að þú
hafir þunnan koll!“ sagði Pétur, greip
handfylli í hárið á sér og skældi sig allan
í framan. „Það getur enginn ætlazt til
þess af okkur, að við étum alla þessa
skepnu, — ekki frekar en Nónhornið eða
Naustahjallann, konu-kjáni! Auðvitað
seljum við hvalinn, manneskja! Fyrst og
fremst er lýsið óskaplega mikils virði,
kannski mörg hundruð tunnur. Nú, svo er
nú ketbitinn af honum og rengið matnr
fyrir þúsund manns eða ég veit ekki livað.
Við gefum, held ég, dauðann og þann
dökka í kaupfélagið og kaupmanninn
hérna — seljum þetta í heildsölu, sko! Og
Kristján Kristjánsson, vararitari Bjarni
Alexandersson og féhirðir Ilannes Gunn-
arsson. Endurskoðendur: Sigurður
Helgason og Kristmann Jónsson — og til
vara Kjartan Eggertsson. Fulltrúar á
sambandsþing U.M.F.Í.: Aðalmenn: Sig-
urður Helgason, Þórður Gíslason, Haukur
Sveinhjörnsson og Kristinn Kristjánsson,
og varamenn: Kristján Jónsson, séra Þor-
steinn L. Jónsson, Karl Toi-fason og Hann-
es Gunnarsson. Á aðalfund l.S.Í.: Sigurð-
ur Helgason og Ágúst Ásgrímsson.
Félagið Snæfell í Stykkishólmi sá full-
trúum félaganna utan Stykkishólms fyrir
ókeypis gistingu og öllum beina. Þá hauð
það þeim einnig á sýningu á Sigrúnu á
Sunnuhvoli og til kvöldboðs fyrri fundar-
daginn. Þar las Guðmundur Gíslason
Hagalín sögu, sem liann var nýbúinn að
semja, og hvergi liafði verið hirt. í boð-
inu voru fluttar margar ræður.
í þinglok flutti Þórður Gíslason Snæ-
felli þakklæti fyrir risnu og rausn.