Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1960, Blaðsíða 31

Skinfaxi - 01.11.1960, Blaðsíða 31
SKINFAXI 127 1 m 'f"niii Uii! li UiU HiSI TWl IHh ||||| |||| 0 ~ B ■ 1 1 sumar og haust hefur verið skammt stórra höggva milli í íslenzku skáklífi. Ber þar fyrst að nefna einvígi þeirra Frið- riks Ólafssonar og Freysteins Þorbergssonar um réttinn til þess að taka þátt í svæðis- keppninni, sem fram fór í Hollandi í nóvem- ber. Eins og kunnugt er, sigraði Friðrik með yfirburðum, hlaut 5 vinninga gegn 1. Þá er næst Gilfersmótið, sem háð var í september. 1 því voru tólf þátttakendur, þar af einn útlendingur, Norðmaðurinn Svein Jó- hannessen, sem er núverandi Norðurlands- meistari í skák. Gerðar voru tilraunir til þess að fá sovéska, bandaríska og ungverska stór- meistara til mótsins, en án árangurs. Sigur- vegari í þessu móti varð Ingi R. Jóhannsson, hlaut 9V2 vinning af 11 mögulegum. Annar varð Friðrik Ólafsson, sem hlaut 9 vinninga, og þriðji Arinbjörn Guðmundsson, hlaut 8V2 vinning. Þessir menn voru í algerum sérflokki á mótinu; tapaði enginn þeirra skák. Ekki verður annað sagt en sigur Inga kæmi nokk- uð á óvart, en hann tefldi af festu og öryggi og átti sigurinn fyllilega skilið. Friðrik virtist aftur á móti ekki eins öruggur og oft áður; lenti hann oft í timahraki, og er ekki vafi á, að skákþreyta hefur háð honum. Árangur Arin- bjarnar er sá bezti, sem hann hefur náð til þessa. Svo var það Fischermótið, en til þess var stofnað sökum þess, að Fischer kom til lands- ins í lok Gilfersmótsins og hafði ætlað að taka þátt í því, en vegna misskilnings um tíma mótsins kom hann ekki fyrr. Robert Fischer sigraði í þessu móti og Ingi R. varð annar. Um leið og Gilfersmótið fór fram, var hald- ið veglegt skákmót í Hafnarfirði í tilefni af 35 ára afmæli Taflfélags Hafnarfjarðar. Tefld- ar voru 9 umferðir eftir Monrad-kerfi. Sigur- vegari varð ungur og efnilegur skákmaður, Leifur Jósteinsson, hlaut 8% vinning af 9 mögu- legum. Meðal þeirra, sem Leifur sigraði þarna, má nefna Lárus Johnsen, fyrrverandi Islands- meistara, Björn Jóhannesson, Sigurgeir Gísla- son, Hauk Sveinsson og Björn Þorsteinsson. Hér birtist svo ein af skákum Leifs úr þessu móti. H v í 11 : Leifur Jósteinsson. S v a r t : Björn Jóhannesson. 1. d2—dJf dJ—d5 2. e2—eS Rg8—f6 3. Bfl—d3 (/7—g6 Betra er líklega 3. —c5 eða Rc6, og gæti þá framhaldið orðið t. d. 3. —c5. 4. c3 Rc6. 5. f4 Bg4! 6. Rf3 e6. 7. 0—0 Rb6. 8. Del 0—0. 9. Re5 Bf5 og svartur stendur mjög vel, eða 3. — Rc6 4. f4 Rb4 5. Rf3 Rxd3 6. cxd3 gb7. Rc3 Bg7 8. 0—0 0—0 og staðan er nokkuð jöfn. k. f2—fJf Nákvæmara var Rd2, því nú gæti 4. Re4 komið til greina. Jf. c7—c5 5. c2—c3 c5—df? Þetta er mjög lélegur leikur. Hér átti svartur að leika 5. — Bg4 og síðan Rbd7. 1 næstu leikj- um á svartur alltaf kost á að koma drottn- ingarbiskupi sínum á hentugan stað, fyrst til g4, og þegar búið var að hindra það með h3 þá til f5. Þetta vanrækir hann og leikur ekki Bf5 fyrr en búið er að hindra með Rd2, að sá leikur nái tilætluðum árangri. Vegna þess tap- ar hann skákinni. Má því segja, að 5.—9. leikur svarts séu allir rangir. 6. Rd2—c2 Bf8—g7 7. h2—h3 h7—h5 8. Rgl—/3 Nákvæmara er hér Rd2, til þess að hindra Rf5. 8. Rb8—c6 9. 0—0 Betra var enn Rd2

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.