Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1966, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.06.1966, Blaðsíða 13
Aff vettvangi Ungmenna- og iþróttasamband Austurlands (UÍA) gekkst fyrir samkomu á s. 1. sumri í Atlavík, Skógarhátíð UÍA, og var öll áfengis- neyzla bönnnuð á skemmtuninni. Sýslunefnnd Suður-Múlasýslu styrkti þetta ágæta félags- lega framtak með góðu fjárframlagi, og marg- ir aðilar aðrir veittu þar góðan stuðning. Ýms- ir spáððu illa fyrir því að það tækist að halda uppi reglu á samkomunni, en það tókst þó vonum fremur. 30 gæzluliðar frá UÍA voru lögregluþjónum til aðstoðar. Þeir fáu menn, sem áfengi sást á, voru jafnóðum teknir úr umferð. Leitað var í bilum við innkeyrsluna í skóginn. Sérstaklega vel var vandað til skemmtiatriða og dagskrár. Dansað var á tveimur stöðum, varðeldur kynntur að næt- urlagi og sérstök skemmtidagskrá höfð í bjarma bálsins. Samkoman stóð í tvo daga. Keppt var í frjálsum íþróttum, handknattleik og lyftingum. Skógarhátíðin var UÍA til hins mesta sóma, og er það álit flestra, að með henni hafi UÍA brotið blað í sögu útiskemmt- ana á Austurlandi. Norskur íþróttakennari, Harald W. Braath- un, starfaði hjá UÍA frá því í janúar og fram í ágúst. Kenndi hannn á 13 stöðum og nutu rúmlega 1000 manns leiðsagnar hans. Hann undirbjó m. a. keppendur UIA fyrir lands- mótið á Laugarvatni, en þar kepptu 9 Aust- firðingar. Viðar Símonarson, íþróttakennari starfaði einnig um 2ja mánaða skeið hjá tveim fálögum á sambandssvæðinu. Á svæðinu fóru fram tvö frjálsíþróttamót, tvö sundmót og auk þess knattspyrnumót, handknattleiksmót °g golfmót. Stjórn UÍA hafði erindrekstur hjá aðildar- félögunum og góða samvinnu við sýslu og sveitarfélög. 22. þing UÍA var haldið á Eiðum 6.—7. nóvember 1965, í stjórn voru kosnir: Kristján SKINFAXI Ingólfsson, Eskifirði, formaður; Jón Ólafsson, Eskifirði, Magnús Stefánsson, Búðakauptúni, Kristján W. Magnússon, Egilsstöðum, Krist- inn Jóhannsson, Neskaupstað, Sveinn Guð- mundsson, Sellandi og Björn Magnússon, Eið- um. Ungmennasamband Eyjafjarðar hefur gefið út myndarlegt ársrit, þar sem skýrt er frá starf- semi sambandsins á s. 1. ári. Ritstjóri árs- ritsins er Þóroddur Jóhannsson, framkvstj. UMSE. Sambandið starfaði ötullega að bindindis- málum, og stóð m. a. fyrir bindindisviku á Akureyri í febrúar í samráði við bindindis- og æskulýðsfélög á Akureyri. Þá stóð UMSE að bindindismóti í Vaglaskógi 31. júlí — 2. ágúst í samvinnu við HSÞ og fleiri félagasam- tök. Nær 4000 manns sóttu þetta mót. Þór- oddur Jóhannsson var framkvæmdastjóri Myndin er af íþróftakennurum og áhugamönnum, er önnuSust kennslu á sumarbúSanámskeiöum UMSE 13

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.