Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1966, Blaðsíða 21

Skinfaxi - 01.06.1966, Blaðsíða 21
Fréttir frá Glímusambandi fslancfls Glímulög: Uppkast til glímulaga, sem Glímu- laganefnd Í.S.Í. (skipuð 24. maí 1963) lagði fram á ársþingi Glímusambands íslands hinn 24. okt. 1965, var sam- Þykkt með lítilsháttar breytingum á stjórnarfundi G.L.Í. hinn 30. desember 1965. Þau tóku gildi 1. jan. 1966, og gilda til ársloka 1967. Reglugerð um búnað glímumanna A stjórnarfundi Glímusambands 7. nóv. 1965 var skipuð þriggja manna nefnd til að gera athugun á glímu- búnaði glímumanna í glímu á opin- berum mótum og semja reglugerð um hann. Nefndina skipuðu þessir menn: Gísli Guðmundsson, formaður, Þor- steinn Kristjánsson, Rögnvaldur R. Gunnlaugsson. Nefndin skilaði áliti sínu og tillög- um 15. desember s. 1. til stjórnar Glímusambandsins, sem tók tillögur nefndarinnar til ýtarlegar athugunar og staðfesti þær síðan á fundi sínum 30. desember s. 1. Kennsludagur fyrir glímukennara 21. nóvember s. 1. var haldinn kennslu- dagur fyrir glímukennara í íþrótta- húsi Jóns Þorsteinssonar, Lindar- götu 7. Kennarar voru þeir Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi, sem var yf- irkennari og skipuleggjari kennslu- dagsins, Guðmundur Ágústsson og Þorsteinn Kristjánsson. Frá setningu F'iórðungsglímumóts Sunnlendingafjórð- ungs. Keppendur, talið frá vinstri: Sigurður Geirdal, Ríkharður Jónsson, Gestur Kristinsson, Ivar Jónsson, Ríkharður Jónsson, Gestur Kristinsson, Ivar Jónsson og Ármann Lárusson. Glímust|órinn, Ingvi Guð- mundsson og form. UMSK, Úlfar Ármannson. Þátttaka var góð. Skipulag og kennslufyrirkomulag við kennsludag- inn var með miklum ágætum og var bæði ánægjulegt og lærdómsríkt að njóta kennslunnar. Glímudómaranámskeið 26. febrúar efndi G.L.l. til glímudóm- aranámskeiðs. Nefnd starfaði til und- irbúnings þess, en hún var skipuð af framkvæmdastjóra I.S.Í. 4. marz 1964. I henni áttu sæti: Hörður Gunnarsson, formaður, Rögnvaldur R. Gunnlaugs- son, Þorsteinn Kristjánsson. Aðalkennari námskeiðsins var Þor- steinn Einarsson, íþróttafulltrúi, en SKINFAXI 21

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.