Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1966, Síða 16

Skinfaxi - 01.06.1966, Síða 16
Reglugerð um afreksbikar landsmóta UMFÍ 1. gr. Verðlaunabikar gefinn af Samvinnutrygging- um s/f 1965 til Landsmóta UMFÍ og skal vei'.ast þeim einstaklinngi, sem á iandsmót- unum sýnir mesta fjölhæfni samfara góðum afrekum. 2. gr. Verðlaunin nefnast Fjölhæfnisbikar Lands- móta UMFÍ og komi fyrst til afhendingar fyrir fjölhæfni og góð afrek á 12. Landsmóti UMFÍ að Laugarvatni. 3. gr. Fjölhæfnisbikarinn er farandgripur. Sá ein- staklingur, sem vinnur hann hverju sinni, skal geyma hann til næsta landsmóts og af- henda hann hálfum mánuði fyrir það mót til stjórnar UMFÍ, en sjálfur haldi hann eftir til eignar eftirlíkingu af bikarnum. 4. gr. Viðkomandi Landsmótsnefnd skal sjá um, að bikarinn sé áletraður nafni handhafa og að hverju sinni sé til eftirlíking hans áletruð. Sé eigi unnt að afhenda bikarinn í lok hvers landsmóts, skal stjórn UMFÍ sjá um að af- hending hans fari fram. 5. gr. Yfirstjórn mótsatriða hvers landsmóts skal meta hverju sinni hver keppanda skuli teljast búinn mestri fjölhæfni og skal við það mat taka fullt tillit til afreka. Keppendur úr öllum tegundum keppni svo og þátttakendur í sýningum og flutningi tón- listar sem áhugamenn koma til greina við mat þetta. Einfaldur meirihluti yfirstjórnar mótsatriða ræður úrslitum. Náist eigi úrslit eða samkomulag hjá yfir- stjórn mótsatriða sker stjórn UMFI úr og skal sá úrskurður vera endanlegur dómur í mál- inu. 6. gr. Handhafi skal ábyrgur að varðveizlu bikar- ins og bæta að fullu tjón, sem á honum kunna að verða. Stjórn UMFÍ annist vátryggingu bikarins. 7. gr. Reglugerð þessi öðlast gildi, þegar gefandi og stjórn UMFÍ hafa samþykkt hana. Samþykkt á fundi stjórnar UMFÍ 26. marz 16 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.