Skinfaxi - 01.06.1966, Side 18
Bréfaskóli 9ÍS hefur verið starf-
ræktur í 25 ár. Skólinn tók til starfa í
októbermánuði 1940. Á þessum 25 ár-
um hafa nemendur skólans verið alls
á 16. þúsund. Skólastjórastörfum við
stofnunina hafa gegnt 4 menn: Ragnar
Ólafsson, lögfræðingur, Jón Magnús-
son, fréttastjóri, Vilhjálmur Árnason,
lögfræðingur og Guðmundur Sveins-
son. /
Nemendur bréfaskólans eru nú sem
næst 1150, en kennarar 18. Umsjón og
daglegan rekstur skólans annast Jó-
hann Bjarnason.
Kennslubréfaflokkar Bréfaskóla SÍS
eru 30 að tölu, þessir: Skipulag og
starfshættir samvinnufélaga, Fundar-
stjórn og fundarreglur, Bókfærsla I og
II, Búreikningar, íslenzk réttritun, ís-
lenzk bragfræði, íslenzk málfræði,
Enska I og II, Danska I, II og III,
Þýzka, Franska, Spænska, Esperanto,
Reikningur, Algebra, Eðlisfræði Mót-
orfræði I og II, Siglingafræði, Land-
búnaðarvélar og verkfæri, Sálarfræði,
Skák I og II, Áfengismál I og II og
Starfsfræðsla.
Frá og með síðustu áramótum varð
breyting á rekstri Bréfaskóla SÍS.
Bréfaskólinn var þá gerður að sam-
eignarstofnu'n verkalýðshreyfingar-
innar og samvinnuhreytfingarinnar.
Heiti skólans er því nú í samræmi við
það: Bréfaskóli SÍS og ASÍ.
Reglugerð fyrir sameignarstofnun-
ina hefur verið lögð fyrir stjórnar-
fundi sambandanna beggja, Alþýðu-
sambands íslands, 16. nóv. síðastliðinn
og Sambands íslenzkra samvinnufé-
laga, 23. nóvember. Var reglugerðin
samþykkt á báðum fundunum.
Samkvæmt reglugerð skólans er til-
gangurinn með myndun sameignar-
stofnunarinnar sá að starfrækja
menntastofnun, er orðið geti áhrifa-
mikill aðili að íslenzkri alþýðumennt-
un. Menntastofnunin á að styðja sam-
böndin bæði í sameiginlegri baráttu
þeirra fyrir aukinni þjóðmenningu.
Bréfaskóli SÍS og ASÍ á samkvæmt
reglugerð „að veita aðstöðu til mennt-
unar og fræðslu með bréfakennslu
eða á annan hátt, sem æskilegt þykir
og tiltækilegt. Aðaláherzla hvílir á
eftirfarandi:
a) Félagslegri og hagrænni (öko-
nomiskri) fræðslu.
b) Atvinnulífi íslendinga og hag-
nýtri menntun í tengslum við
það.
c) Almennri menntun.
Öll kennsla á vegum skólans skal
vera hlutlaus í trúmálum og stjórn-
málum.“
Þótt skólinn sé nú sameignarstofn-
uín samvinnuhreýfingarinnar og
verkalýðshreyfingarinnar, heimilar
reglugerðin „að veita öðrum samtök-
um á íslandi aðild að rekstri skólans.“
„Þau samtök verða að vera lýðræðis-
leg og í þágu almennings“, segir í
reglugerðinni.
Samkvæmt reglugerðinni er bréfa-
skólanum nú stjórnað af þriggja manna
18
SKINFAXI