Skinfaxi - 01.06.1966, Qupperneq 22
auk hans kenndu Þorsteinn Kristjáns-
son og Hörður Gunnarsson.
Stjórn G.L.Í. ákvað, að á glímudóm-
aranámskeiðið væru ekki teknir yngri
menn en 18 ára.
Þessir menn luku Glímudómara-
prófi á dómaranámskeiðinu: Garðar
Erlendsson, Knattsp.fél. Rvk., Gísli
Guðmundsson, Glímufél. Ármanni,
Guðmundur F. Halldórsson, Glímufél.
Ármanni, Gunnar Pétursson, Knattsp.
Rvk., Ingvi Guðmundsson, Umf. Vík-
verja, ívar Jónsson, Umf. Breiðabliki,
Kóp., Lárus Lárusson, Umf. Breiða-
bliki, Kóp., Valgeir Halldórsson,
Glímufél. Ármanni, Þorvaldur Þor-
steinsson, Glímufél. Ármanni.
Heimildasöfnunarnefnd glímunnar
Á stjórnarfundi G.L.I. 3. október var
samþykkt að skipa þriggja manna
nefnd til heimildasöfnunar á því, sem
skrifað hefur verið um glímuna, og er
Ólafur H. Óskarsson, formaður henn-
ar.
Landsliðsnefnd. Úrvalsflokkur glímu-
manna
Stjórn Glímusambandsins hefur á-
kveðið að velja úrvalsflokk glímu-
manna, sem sýnt geti glímu við ýmis
tækifæri.
Skipuð hefur verið þriggja manna
nefnd (landliðsnefnd) til að velja
glímumenn í þennan úrvarlsflokk.
Þeir, sem sæti eiga í landliðsnefnd
eru: Þorsteinn Einarsson, formaður,
Hafsteinn Þorvalsson, Rögnvaldur R.
Gunnlaugsson.
Glímusambandið hefur ákveðið að
athuga möguleika á þátttöku glímu-
manna í heimssýningunni í Montreal
í Kanada 1967.
Skipuð hefur verið þriggja manna
nefnd til undirbúnings málsins, og er
Sigurður Geirdal formaður hennar.
Þorsteinn Kristjánsson hefur verið
ráðinn landsþjálfari Glímusambands-
ins, og mun hann leiðbeina í glímu,
eftir því sem efnahagur og ástæður
leyfa.
F j órðungsg límumót
Ákveðið hefur verið að koma á sérst-
ökum glímumótum fyrir landsfjórð-
ungana, og eru fyrstu fjórðungsglímu-
mótin háð á þessu ári.
Gefnir hafa verið ágætir verðlauna-
gripir til þessarar keppni.
Staðfestar hafa verið reglugerðir
fyrir verðlaunagripina. Þessum aðilj-
um hefur verið falið að sjá um fram-
kvæmd fjórðungsglímumótanna:
a) Héraðssamband Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu sjái um Fjórð-
ungsglímumót Vestfirðingafjórð-
ungs.
b) íþróttabandalag Akureyrar sjái
um Fjórðungsglímumót Norðlend-
ingafjórðungs.
c) Glímuráð U.I.A. sjái um Fjórðungs-
glímumót Austfirðingafjórðungs.
d) Ungmennasamband Kjalarnes-
þings sjái um Fjórðungsglímumót
Sunnlendingafjórðungs.
Fj órðungsglímumót Sunnlendinga-
fjórðungs var háð í Samkomuhúsinu
að Garðaholti laugardaginn 30. apríl
síðastliðinn. Er þetta í fyrsta sinn sem
fjórðungsglímumót Sunnlendinga-
fjórðungs er haldið. 5 keppendur tóku
þátt í mótinu allir frá Ungmenna-
sambandi Kjalarnesþings sem einnig
sá um framkvæmd þess móts.
Framhald á bls. 25.
22
SKINFAXI