Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1967, Síða 6

Skinfaxi - 01.04.1967, Síða 6
ungur. Hinn 3. október um haustið var Ungmennafélag Reykjavíkur stofnað. — Hver var tilgangur ykkar með stofnun ungmennafélaganna? — Við vorum oft spurð um þetta, og við spurðum okkur sjálf oft um þetta. „Hvað er þessi hreyfing?“ var spurning, sem við fengum oft að heyra. Mitt svar var og er þetta: Þjóðfélagsaðstæðurnar kölluðu á þessa hreyfingu. Hljómgrunnur henn- ar og frábærar móttökur meðal unga fólksins sýndi að hún var tímabær. Hún fór eins og eldur í sinu um land- ið. Þjóðin átti vitundina um að full- veldið var á næsta leiti. En hlaðsprett- urinn var eftir. Ungu kynslóðina vant- aði vettvang til að búa sig undir að taka við sjálfstæðu íslandi og sýna, að hún var þess megnug. Ungmennafé- lögin urðu sú þjálfunarstofnun, sem skólaði flesta af beztu forvígismönn- um hins nýfrjálsa íslands. Undirbúningur sjálfstæðis — Og hvernig fór þessi „þjálíun“ fram? — Ungmennafélögin létu sér fátt vera óviðkomandi. í Ungmennafélagi Reykjavíkur voru málfundir haldnir a. m. k. hálfsmánaðarlega. Við lögðum áherzlu á að fólk hristi af sér alla feimni, yrði frjálsmannlegt og þyrði að rísa upp og standa fyrir máli sínu. íþróttir urðu strax sterkur þáttur í starfinu. Glíma, sund, leikfimi og síð- ar frjálsar íþróttir voru þær greinar, sem fyrst og fremst voru iðkaðar. Fé- lagsleg átök og framkvæmdir sýndu mátt samtakanna og gildi starfsins. Við reistum t. d. sundskála við Skerja- fjörð, gerðum skíðabraut 1 Öskjuhlíð- inni, þar sem Bjarni Benediktsson býr núna, unnum að skógrækt o. fl. Allt varð þetta til að efla mjög stórhug og sjálfstæðisvitund fólksins. í félaginu var líka blóminn af unga fólkinu í Reykjavík. — Þú munt hafa lagt á ráðin um stofnun UMFÍ. — Já, það var á Þingvöllum við konungskomuna 1908. Ungmennafé- lagar létu þá mjög að sér kveða og áttu stærstan þátt í íþróttahátíðinni, sem þá var. Þarna stofnuðum við Ung- mennafélag íslands, drógum hvítbláa fánann að húni og gengum fylktu liði undir þessu frelsismerki, eins og frægt varð. Jóhannes Jósepsson varð fyrsti formaður UMFÍ, en fljótlega varð séð, að nauðsynlegt var að hafa aðalstöðv- arnar í Reykjavík og þá var mér falin forystan. Tímarit UMFÍ — Hvað um upphaf Skinfaxa? — Skinfaxi byrjaði sem handskrif- að blað í Ungmennafélagi Reykjavík- ur. Eftir að UMFÍ var stofnað, var ljóst, að samtökunum var brýn þörf á málgagni, og við hófum útgáfu Skin- faxa árið 1909. Nokkrum árum síð- ar kom ungur maður frá námi erlend- is, og hann hafði ekki verið nema einn eða tvo daga á fósturjörðinni, þegar hann leitaði okkur í Ungmennafélag- inu uppi og gerðist okkar félagi. Ég hafði komið auga á óvenjulega rit- hæfileika þessa manns, og ég fékk því ráðið að hann tók við Skinfaxa. Þetta var Jónas Jónsson frá Hriflu, og sem ritstjóri Skifaxa hóf Jónas hinn stormasama feril sinn í íslenzkum þjóðmálum. 6 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.