Skinfaxi - 01.04.1967, Page 7
Myndin er tekin 1914, er UMFR og Umf. Iðunn héldu Guðbrandi kveðjusamsœti, þegar hann flutti úr bœnum.
Guðbrandur heldur á svipu, sem honum var gefin að skilnaði. Meðal ungmennafélaga ó myndinni eru séra
Jakob Lórusson, Helgi Hjörvar, Jón Þórðarson, prentari, Ásgeir Ásgeirsson, síðar forseti Islands, Jörundur
Brynjólfsson, Jónas Jónsson, Sigurjón Pétursson o. fl.
Eftir 60 ár
— Hvað segirðu svo um ungmenna-
félögin í dag eftir öll þessi ár?
— Ungmennafélögin hafa haldið
velli þrátt fyrir gjörbreyttar þjóðfé-
lagsaðstæður. í kaupstöðunum hafa
mörg önnur félög tekið að sinna
hverju einstöku máli, sem ungmenna-
félögin höfðu áður 1 fangi, svo sem
einstökum íþróttagreinum, söng, skóg-
rækt o. fl. En ungmennafélögin hafa
samt sannað tilverurétt sinn áfram,
einkum í dreifbýlinu. Ég hef ekki orð-
ið öllu glaðari á síðari árum en þegar
ég upplifði líf ungmennafélaganna á
Landsmótinu að Laugarvatni 1965.
Þar var íslenzk æska í essinu sínu
undir merki ungmennafélaganna. Ég
sá, að þetta er enn í fullu fjöri.
Framsýni
Guðbrandur er kvæntur Matthildi
Kjartansdóttur, og í húsi þeirra að
Ásvallagötu 52 getur að líta óvenju
fallegt heimili íslenzkrar listar og
heimilisiðnaðar, þar sem húsmóðirin
á sinn stóra þátt. Fjölmörg málverk
meistara Kjarvals prýða þetta heimili
og gefa því einstæðan svip. Enginn
skyldi furða sig á þessu. Þeir Guð-
brandur og Kjarval eru aldavinir, og
það ætti að fara vel á því að rifja að
SKINFAXI
7