Skinfaxi - 01.04.1967, Side 15
Af vettvangi
Héraðsþing H.S.H. var haldið að Breiðabliki
í Miklaholtshreppi 12. marz s.l. Þingforseti
var kjörinn Stefán Ásgrímsson, Stóru-Þúfu.
Gestir þingsins voru Þorsteinn Einarsson,
íþróttafulltrúi, sem flutti erindi um íþrótta-
og félagsmál og Jón F. Hjartar, er flutti
kveðjur og árnaðaróskir frá Ungmennafélagi
íslands. Á þinginu var lögð fram í fyrsta sinn
fjölrituð ársskýsla. Alls höfðu verið sett 14
ný héraðsmet í .frjálsum íþróttum á árinu og
2 í sundi. 25 karlar og konur höfðu öðlast rétt
á íþróttamerki Í.S.Í. íþróttamaður ársins var
kjörinn Sigurður Hjörleifsson Í.M., en hann
er einn fjölhæfasti íþróttamaður sambands-
ins. Hefur hann náð athyglisverðum árangri
í frjálsum íþróttum, auk þess sem hann hef-
ur vakið athygli sem góður körfuknattleiks-
maður. Vann hann til eignar áletraðan silfur-
pening, ien auk þess hefur Kirkjusandur h.f.
ákveðið að gefa styttu, sem verður farand-
gripur, er íþróttamenn ársins hverju sinni
skulu varðveita. í skýrslu formanns kom
fram, að stjórn sambandsins hefði í hyggju
að ráða íþróttakennara til að ferðast um sam-
bandssvæðið í sumar og leiðbeina í íþróttum.
Margt fleira athyglisvert kom fram í skýrslu
formanns, m. a. hafði sambandið staðið fyrir
2 æskulýðssamkomum á árinu. Mörg mál
voru afgreidd á þinginu. Stjórn sambandsins
var öll endurkosin, en hana skipa: Jónas
Gestsson, formaður, Grundarfirði, Guðbjart-
ur Gunnarsson, Hjarðarfelli, ritari, Sigurður
Björgvinsson, gjaldkeri, Stykkishólmi, með-
stjórnendur Stefán Ásgrímsson, Stóru-Þúfu
og Þórður Gíslason, Ölkeldu og varaformað-
ur Sigurður Helgason, Laugargerðisskóla. í
lok þingsins sýndi íþróttafulltrúi nýja kvik-
mynd um frjálsar íþróttir. íþróttafélag Mikla-
holtshrepps sá um þingið.
Frp.ttaritari H.S H.
Sundmót Héraðssambands
Strandamanna 1966
það 17. í röðinni, fór fram við Gvendarlaug
í Bjarnarfirði 21. ágúst.
Keppendur voru frá þrem sambandsfélög-
um: Ungmennafél. Leifur heppni í Árnes-
hreppi, Sundfél. Grettir í Kaldrananeshreppi,
Ungmennafél. Geislinn í Hólmavík.
Einnig keppti, sem gestur, Trausti Svein-
björnsson frá Sundfél. Hafnarfjarðar.
Úrslit urðu þessi:
50 m. bringusund kvenna:
1. Kristbjörg Magnúsdóttir, Gretti
(H.S.S. met ......................... 48,0
2. Eyrún Ingimarsdóttir, Gretti ........ 48,1
3. Petrína Eyjólfsdóttir, Leifi ........ 51,7
100 m skriðsund karla:
1. Svanur Á. Ingimundarson, Gretti .. 1:13,3
2. Jón Arngrímsson, Gretti ........... 1:15,4
3. Eiríkur Jensson, Gretti............ 1:15,7
skinpaxi
15