Skinfaxi - 01.04.1967, Side 19
H.S.K. en milliþinganefnd hafði unn-
ið mikið undirbúningsstarf í því máli
frá síðasta héraðsþingi.
2. Þrastaskógur. Form. Þrastaskóg-
arnefndar U.M.F.Í., Stefán Jasonar-
son, hafði framsögu í þessu máli, og
skýrði þinginu frá störfum nefndar-
innar, og hugmyndum, um framtíðar-
aform í Þrastaskógi, sem eru mjög at-
hyglisverðar.
Gerð var svohljóðandi samþykkt á
þinginu:
45. héraðsþing Skarphéðins, haldið
að Flúðum 28. og 29. jan. 1967, fagnar
þeim framkvæmdum sem gerðar hafa
verið í Þrastaskógi að undanförnu, og
því ágæta samstarfi sem verið hefur
milli H.S.K. og U.M.F.Í. í sambandi
við þessar framkvæmdir. Þingið felur
sambandsstjórn að hefja samninga við
stjórn U.M.F.Í. um aðstöðu Skarphéð-
ins í Þrastaskógi og áframhaldandi
mannvirkjagerð þar.
Stjórn Skarphéðins hafi samráð við
forustumenn ungmennafélaganna um
þessi mál.
Jafnframt þakkar þingið þeim ung-
mennafélögum, sem lagt hafa fram
fórnfúst starf í Þrastaskógi á liðnum
árum og væntir þess, að áframhald
verði á slíkri starfsemi.
Að síðustu leggur þingið áherzlu á
nð Þrastaskógur er dýrmæt eign, sem
nngmennafélög um land allt þurfa að
hlúa að og skapa þar sem bezta að-
stöðu til fjölþættrar félagsstarfsemi.
3. Landgræðsla og gróðurvernd.
korm. sambandsins, Jóhannes Sig-
mundsson, hafði framsögu í þessu
mikilsverða máli.
Ungmennafélögin hafa frá önd-
verðu látið sig miklu skipta ræktun
landsins. Nú á síðari árum hefur
SKlNFAXI
komið í ljós með nákvæmum mæling-
um vísindamanna, að gróðurlendi
lands vors fer stöðugt minnkandi, og
ræktun vegur hvergi nærri upp á móti
landeyðingunni. Því mun enn sem
fyrr verða leitað til hinna fórnfúsu,
vinnandi handa ungmennafélaganna í
landinu, sem .leggja munu metnað
sinn í að bjarga landi sínu frá upp-
blæstri og eyðingu.
Héraðsþing samþ. svohljóðandi til-
lögu:
Héraðsþing H.S.K. 1967 vekur at-
hygli á framkomnum tillögum um
þátttöku ungmennafélaga í land-
græðslu og gróðurvernd á afréttar-
löndum landsins. Telur þingið að hér
sé um merkilegt mál að ræða, ekki
sízt fyrir þetta hérað, þar sem gróður-
eyðing er sums staðar geigvænleg og
brýn þörf að stöðva hana og græða
landið upp að nýju. Hvetur þingið
ungmennafélaga til að bregðast vel
við, ef til þeirra verður leitað í þessu
máli.
4. íþróttamál. íþróttanefndir H.S.K.
höfðu unnið mikið starf á s.l. ári, og
samkv. afreka- og metaskrám sem
lagðar voru fram á þinginu, eru fram-
farir einstaklinga miklar, auk þess
sem þátttakendum í íþróttastarfi ung-
mennafélaganna fer stöðugt fjölgandi.
Kostnaður við hið mikla íþróttastarf
fer stöðugt vaxandi, og er H.S.K., sem
og önnur vel starfandi íþróttafélög í
landinu, að sligast undir kostnaðinum.
Þrátt fyrir þessa staðreynd gerði
þing H.S.K. mjög margar, merkar
samþykktir í íþróttamálum, og von-
andi er að hægt verði að framfylgja
þeim.
Meðal samþykkta í íþróttamálum
var þessi:
19