Skinfaxi - 01.04.1967, Page 20
— Þingið hvetur sambandsfélögin til
að hefja nú þegar öflugan undirbún-
ing undir þátttöku Skarphéðins í 13.
landsmóti U.M.F.Í., sem halda á að
Eiðum 1968. í því sambandi vill þing-
ið minna á, að forkeppni landsmótsins
hefst á þessu ári.
5. Sumarbúðir H.S.K. Héraðsþing
lýsti ánægju sinni með starfrækslu
sumarbúða á vegum sambandsins á
s.l. sumri að Laugarvatni, og hvatti
til þess að efla þá starfsemi.
Gestur þingsins, séra Bernharður
Guðmundsson í Skarði, flutti snjalla
og athyglisverða ræðu um samstarf
kirkjunnar og H.S.K. um starfrækslu
sumarbúða í héraðinu.
6. Félagsmál. Enn sem fyrr hvatti
héraðsþing sambandsfélögin til ár-
vekni og framsóknar á öllum sviðum
félagslífs, um leið og þakkað var fyrir
það sem gert hefur verið á þessum
sviðum.
Samþykktir voru gerðar í bindindis-
málum, svohljóðandi tillaga var sam-
þykkt:
Héraðsþing 1967 beinir þeim til-
mælum til stjórnar sambandsins, að
hún athugi möguleika á fræðslu um
skaðsemi tóbaks og áfengis í sambandi
við fyrirhugaðar sýningar á kvikmynd
frá landsmótinu að Laugarvatni og
leitað verði til áfengisvarnanefnda um
aðstoð við þessa framkvæmd.
Einnig samþykkti héraðsþing að
skora á Alþingi að samþykkja frum-
varp til laga um breytingar á áfengis-
lögunum, sem nú liggur fyrir Alþingi.
Samþykktir um samkomuhald í
héraðinu:
Héraðsþing 1967 beinir þeirri áskor-
un til samkomuhúsanefndar, og við-
komandi sýsluyfirvalda, að þeir beiti
sér fyrir eftirfarandi atriðum í sam-
bandi við opinbert samkomuhald:
a. Að leitað verði eftir samstarfi
við yfirvöld á þeim stöðum sem sæta-
ferðir koma frá á dansleiki, að reynt
verði að hafa eftirlit með því að með
sætaferðum komi ekki unglingar und-
ir 16 ára aldri, og reynt verði að koma
í veg fyrir að áfengi sé með í þessum
ferðum.
b. Að unglingum sé skylt að sýna
nafnskírteini eins og lög mæla fyrir.
c. Að forráðamenn samkomuhúsa
hafi góða samvinnu sín á milli um
leigukjör danshljómsveita.
d. Að reynt verði eins og unnt er
að bægja óreglu frá samkomum, og
löggæzla sé fullnægjandi.
Minnisvarði um Ara fróða. Tillaga
flutt af heiðursformanni H.S.K., Sig-
urði Greipssyni.
Á þessu ári eru liðin 900 ár frá fæð-
ingu Ara Þorgilssonar hins fróða. í til-
efni þess samþykkir þingið að kjósa
5 manna nefnd til að vinna að undir-
búningi þess að honum verði reistur
minnisvarði og helgaður trjálundur
í Haukadal.
7. Fjárhagsmál. Um fjárhagsmál
urðu nokkrar umræður. Ljóst er að
óbreyttum aðstæðum, að tekjustofn-
ar sambandsins hrökkva hvergi nærri
fyrir vaxandi útgjaldaliðum. Þingið
samþykkti meðal annars í þessu mik-
ilsverða máli svohljóðandi tillögu:
Héraðsþing 1967 fer þess á leit við
hreppa og sýslunefndir á sambands-
svæðinu, að þær styrki héraðssam-
bandið með beinum fjárframlögum og
jafnframt að sá liður gæti orðið fast-
ur liður í tekjum sambandsins í fram-
tíðinni.
20
SKINFAXI