Skinfaxi - 01.04.1967, Side 21
Guömundur S. Hofdal - Minning
f■ 15. wpríl 1883 — d. 14. janúar 1967.
Enn hefur fækkað um einn í hópi
hinna vöskustu æskumanna aldamóta-
kynslóðarinnar. Guðmundur Sigur-
jónsson Hofdal var einn þeirra ungu
manna, sem hóf merki íþróttanna upp
sklNFAXI
úr aldamótunum, en íþróttirnar og
ungmennafélagshreyfingin voru þá
meira og minna samofin sjálfstæðis-
baráttu íslendinga.
Guðmundur var Mývetningur að
ætt, og því þarf engan að undra að
hann lærði íslenzka glímu í uppvexti
sínum. Glíman hafði mikið aðdráttar-
afl fyrir unga menn þar í sveit á þeim
dögum.
Guðmundur fluttist til Reykjavíkur
1905, og varð brátt einn af fræknustu
glímumönnum landsins, og í fremstu
röð á stærstu kappmótum um árabil.
Hann var einn þeirra, sem sýndu
glímu á Olympíuleikunum í London
1908.
Árið 1910 var Guðmundur ráðinn
íþróttakennari hjá Ungmennafélagi
íslands, og ferðaðist hann á vegum
samtakanna víða um land allt til árs-
ins 1913, er hann hvarf af landi brott
til langdvalar erlendis. íþróttakennsla
Guðmundar á vegum UMFÍ, sérstak-
lega glímukennsla hans, varð mjög
heillarík. Hann náði góðum og víðtæk-
um árangri í starfi sínu. Hér var rétt-
ur maður á réttum stað, og Guðmund-
ur átti eftir að verða mjög eftirsóttur
íþróttakennari.
Ævi Guðmundar varð mjög óvenju-
leg, og sumir vildu ef til vill segja —
ævintýraleg. Hann fór til Englands að
læra nuddþjálfun, en þaðan lá leið
hans til Vesturheims. Hann var í
Kanada, þegar heimsstyrjöldin fyrri
21