Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1972, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.02.1972, Blaðsíða 3
SKINFAXI Tímarit Ungmennafélags íslands — LXIII. árgangur — 1. hefti 1972 — Ritstjó:i Eysteinn Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju. Starfsmenn ungmennafélaganna Á undanförnum árum hefur það færst mjög í vöxt að Héraðssamböndin hafa ráðið sér launaða starfskrafta í lengri eða skemmri tíma ársins, og sum hafa r.áð því takmarki að hafa launaðan mann í framkvæmdastjórastöðu allt árið, og gegnir hann þá fullu starfi yfir sumar- tímann en að hluta yfir veturinn, en starfið slitnar þó aldrei í sundur [ þessum tilvikum. Nú f sumar munu að öllum líkindum verða starfandi 8 framkvæmdastjórar hjá Héraðssam- böndunum og aðildarfélögum UMFÍ, og þar af eru fjórir f samfelldu starfi allt árið. Störf Héraðssambandanna og þær kröfur sem til þeirra eru gerðar f dag hlaut að kalla á eitt- hvert slíkt fyrirkomulag. Reynslan af þessum launuðu starfsmönnum hefur allsstaðar orðið jákvæð, þó að sumsstaðar hafi verið við nokkra byrjunaröiðugleika að stríða. Þannig hefur það t. d. komið f Ijós að ekki hefur reynzt vel að hafa framkfæmdastjórana jafn- framt aðalþjálfara viðkomandi sambands. Skrifstofa UMFÍ, einstöku félagar og stjórnir, hafa glöggt fundið hversu samböndin eru meira megnug og starfshæfari með starfsmann en án hans, auk þess að slíkur starfsmaður á ekki að verða fjárhagslegur baggi ef vel er á málunum haldið. Þetta þýðir þó ekki á nokkurn hátt minnkandi sjálfboðastarf eins og einhver kynni að óttast, þvert á móti hefur reynslan orðið sú að starfsmaðurinn hefur getað skipu- lagt sjálfboðastarfið betur en áður og fengið fleiri til starfa. Fornáðamenn UMFÍ hafa þvf hiklaust hvatt Héraðssamböndin til þess að ráða sér starfs- menn og láta einskis ófreistað til þess að fá sem hæfasta félagsmálamenn til þessara starfa. Skrifstofa UMFÍ hefur veitt alla aðsioð sem í hennar valdi stendur við að útvega nienn og einnig kynnt þeim sem ráðnir hafa verið, verk þeirra sem hafa starfað á undanförnum árum á vegum Héraðssambandanna. Ég vil að lokum óska eftir ^óðu samstarfi við alla framkvæmdastjóra ungmennafélag- anna á komandi sumri, og bjóða nýja starfs- menn velkomna til starfa, og hvet þá til þess að hafa samband við skrifstofu UMFÍ hvenær sem þeir þurfa á því að halda. Störf fram- kvæmdastjóra héraðssambandanna hafa stór- kostlega aukið styrk Ungmennafélagshreyf- ingarinnar í landinu á undanförnum árum, og það er gleggsta sönnunin fyrir því að við erum að gera rétt með ráðningu þessara starfs- manna. Sigurður Geirdal. SKINFAXI 3

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.