Skinfaxi - 01.02.1972, Page 12
Ályktanir sambandsþings UMFÍ um
ÍÞRÓTTAMÁL
27. sambandsþing UMFI haldið að
Húnavöllum dagana 30.—31. okt. 1971
hvetur ungmennafélög um land allt til að
auka verulega íþróttaiðkanir almennings
jafnframt því sem lögð sé stund á keppn-
isíþróttir.
Þingið bendir á eftirtaldar leiðir til þess
að ná þessu markmiði:
a) Með rækilegri kynningu meðal al-
mennings á hinni brýnu þörf, sem
hverjum einstaklingi sé að stunda lík-
amsrækt.
b) Með því að beita sér fyrir iðkun fim-
leika, sunds, knattleikja og fleiri
íþróttagreina fyrir karla og konur, er
ekki leggja stund á keppnisíþróttir.
c) Með þvi að auka iþrótta- og félagsleg
samskipti innan ungmennafélags-
hreyfingarinnar. Nái samskiptin jafnt
til sumar- sem vetrariþróttagreina og
yngri sem eldri þátttakenda.
d) Með því að leggja stund á þjóðlegar
íþróttir svo sem glímu og þjóðdansa
og leitast við að koma á námskeiðum
i þeim greinum i félögum og skólum.
e) Með þvi að halda áfram skipulegri
þjálfun afreksfólks í keppnisgreinum
og glæsilegri þátttöku i hinum fjöl-
mörgu íþróttamóum, sem háð eru í
landinu.
27. sambandsþing UMFÍ felur stjórn
UMFÍ að vinna að utanför sundfólks og
annarra íþróttahópa á sama grundvelli
og utanför frjálsíþróttafólks á liðnu ári
og reyni að koma því á á næsta ári.
27. sambandsþing UMFÍ samþykkir að
beina því til stjórnar UMFÍ að hún kanni
möguleika á þvi að taka upp landsmót
eða fjórðungsmót fyrir yngri flokka í-
þróttafólks. Ennfremur íþróttamót í vetr-
aríþróttum.
27. sambandsþing UMFÍ beinir því til
stjórnar samtakanna að unnið verði
markvist að því við byggingardeild
menntamálaráðuneytisins og aðra for-
ráðamenn skólabygginga í landinu að
aukið verði rými innan svokallaðra norma
varðandi byggingu iþróttamannvirkja við
skólana. Þannig yrði léttara fyrir hin
frjálsu félagasamtök að fá löglega að-
stöðu til æfinga og keppni fyrir félaga
sína.
Utanför sundfólks ungmennafélaganna er eitt
af næstu verkefnum UMFÍ.
12
SKINFAXI