Skinfaxi - 01.02.1972, Blaðsíða 21
50. Héraðsþing HSK var háð dagana
26-27, febrúar s.l. í Árnesi í Gnúpverja-
hreppi. Þingið hófst kl. 14.30 með setn-
ingaræðu formanns, og kosningu starfs-
manna þingsins, þingforsetar voru kjörn-
ir Jón Ólafsson og Hermann Guðmunds-
son en þingritarar Haraldur Júlíusson og
Arnór Karlsson.
Allmargir gestir sátu þingið og þar á
meðal Hafsteinn Þorvaldsson, Valdimar
Óskarsson, Sigurður Geirdal og Jórunn
Sigurbjörnsdóttir frá UMFÍ, Gísli Hall-
dórsson, Sveinn Björnsson og Sigurður
Magnússon frá ÍSÍ, Árni Guðmundsson
skólastjóri ÍKÍ, Sigurður Greipsson,
Helgi Haraldsson, frá Hrafnkelsstöðum,
Stefán Jasonarson og Þórir Þorgeirsson.
Alls sátu þingið milli 60 og 70 fulltrúar
frá 22. félögum.
Formaður, Jóhannes Sigmundss., flutti
skýrslu stjórnar og var hún all yfirgrips-
mikil enda störf Skarphéðins og félaga
innan hans með miklum ágætum og fjöl-
breytt í bezta lagi. Eggert Haukdal las
upp reikninga sambandsins og skýrði þá.
Sambandið hefur átt í nokkrum fjár-
hagserfiðleikum enda gífurlegur kostn-
aður við að halda uppi svo fjölbreyttri og
mikilli starfsemi. Niðurstöður fjárhags-
áætlunar sem samþykkt var á þinginu
hljóðaði upp á kr. 1.155.000.00.
Skarphéðinsþing standa yfir í tvo daga,
og var efnt til kvöldvöku á laugardags-
kvöldið í umsjá heimamanna Umf.
Gnjúpverja, var kvöldvakan hin ágætasta
bæði fróðleg og skemmtileg.
Eitt aðalmál þingsins var að þessu
sinni skipulagsmál sambandsins og voru
á þinginu samþykkt ný lög sem fela í
sér nokkra breytingar frá fyrri lögum
sambandsins, t. d. er stjórnarmönnum
fjöigað úr 3 í 5 og kveðið á um að ritari
skuli jafnframt vera varaformaður, þá
er gert ráð fyrir þóknun til stjórnarinnar
samkv. reikningi fyrir störf í þágu Sam-
bandsins. Þingið samþykkti einnig sér-
stakt erindisbréf til íþróttanefnda HSK,
og má hiklaust telja það lofsverða ný-
breytni að kveða þannig á um starfssvið
einstöku nefnda og mun það efalaust
létta mörgum nefndum að skipuleggja
störf sin.
Margar tillögur voru samþykktar á
þinginu um félags- og menningarmál og
markið sett hátt hvað áætlanir um fram-
tiðarstarfið varðar.
Stjórnin var endurkosin, en samkvæmt
hinum nýju lögum bættust tveir menn
við, stjórn HSK er þannig skipuð nú:
Jóhannes Sigmundsson, form.,
Eggert Haukdal, gjaldkeri,
Hjörtur Jóhannsson, ritari,
Meðstjórnendur Kristján Gislason,
og Sigurður Jónsson.
Ungmennasamband Skagafjarðar hélt
héraðsþing sitt sunnudaginn 27. febrúar
á Sauðárkróki.
SKINFAXI
21