Skinfaxi - 01.02.1972, Side 20
II11111111111111111111111111111111111111111111
iiiiiiiisiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiitsiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiii
iiiiiiiiiiin
FRÁ
STARFINU
Héraðsþing HSH var haldið í félags-
heimilinu Röst Hellissandi 6. febrúar, s. 1.
Pormaður HSH Jón Pétursson setti
þingið og skipaði þá Skúla Albertsson og
Jónas Gestsson sem þingforseta, því næst
var flutt skýrsla stjórnar og reikningar.
Starfið fer vaxandi hjá HSH, og eru
íþrótta- og landgræðslumót, mest áber-
andi þættirnir, enda er HSH landsþekkt
fyrir frjálsiþróttafólk sitt. Magndis Alex-
andersdóttir gjaldkeri HSH las upp reikn-
inga sambandsins og skýrði þá. Það vek-
ur athygli hvað sveitarstjórnir á Snæ-
fellsnesi sýna starfi ungmennafélaganna
mikinn skilning og áhuga og styrkja þau
ásamt sýslusjóði all myndarlega, þannig
er nú ákveðið af stjórn og þingi HSH að
ráða til sín framkvæmdastjóra næsta
sumar, og er það aðeins mögulegt vegna
þess að sveitarstjórnirnar munu leggja
fram verulegt fé til þeirra hluta, mættu
sveitarstjórnir annarstaðar á landinu
ýmislegt af Snæfellingum læra í þessum
efnum.
Á þinginu var tilkynnt um kjör iþrótta-
manns ársins innan HSH og varð það að
þessu sinni Kristín Bjargmundsdóttir, en
hún er ein úr hinum frækna hópi frjáls-
íþróttafólks HSH.
Af hálfu UMFÍ sóttu þingið þeir Gunn-
ar Sveinsson gjaldkeri UMFÍ og Sigurður
Geirdal framkvæmdastjóri, fluttu þeir
ávörp og störfuðu með nefndum svo sem
venja er hjá fulltrúum UMFÍ á þingum
héraðssambandanna. Þingið var vel sótt
og í alla staði hið ánægjulegasta, sóknar-
hugur var í þingfulltrúum og stjórn HSH
hvað varðar æskulýðs- og unglingastörfin
og einnig kom fram skemmtilegar og at-
hyglisverðar ábendingar i ræðu for-
mannsins, en e.t.v. mun Skinfaxi birta
úrdrátt úr þeirri ágætu ræðu siðar, og
verður þvi ekki farið út í einstök atriði
hennar hér.
Stjórn HSH var öll endurkjörin, en
hana skipa þau:
Jón Pétursson, formaður,
Magndís Alexandersd., gjaldkeri,
Jóhann Lárusson, ritari.
Til vara:
Skúli Alexandersson,
Gestur Tryggvason,
Vilhjálmur Pétursson.
Kristin Bjarg-
mundsdóttir,
„íþróttamaður
ins" hjá HSH.
20
SKINFAXI