Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1972, Page 16

Skinfaxi - 01.02.1972, Page 16
Guðmundur Þórarinsson: LYFTINGATÆKI OG NOTKUN ÞEIRRA mum ft 'feí j . Ef ætlunin er að nota lyftingatæki og lyftingaæfingar í þeim tilgangi að auka afreksgetu einstaklingsins í einhverri íjoróttagrein, þá eru ýmis atriði í með- ferð þeirra sem taka verður tillit til, ef notkun þeirra á að gefa góða raun. Hér á eftir verður gerð tilraun til að gera þessu nokkur skil, eftir því sem rúm leyfir. Ahrif lyftingaæfinga Lyftingaæfingar gera ekki þann sem þær æfir, t. d. knattspyrnumann, að leiknari íþróttamanni. Þær gera hann hins vegar, séu þær rétt æfðar, að sterk- ari íþróttamanni, sem síður er hætt við meiðslum en áður, — leikmanni sem vtrður stæltari og kröftugri við að spyma knettinum eða skalla hann. Svipaðar framfarir verða hjá öllum sem nota lyftingaæfingar, hvaða íþrótt sem þeir síðan keppa í. Líkaminn stælist, öðlast meiri kraft og verður betur undir líkamsæfingar búinn, en tækni keppnis- íþróttarinnar eykst ekki nema hún sé æfð sérstaklega. Frásögn af æfingum frægs spretthlaup- ara Hinn heimskunni spretthlaupari, svert- inginn McDonald Bailey, sem m. a. dvaldist um tíma hér á landi á vegum ÍR við þjálfun frjálsíþróttamanna, er ágætt dæmi um íþróttamann sem æfði með lyftingatækjum og taldi sig hafa náð sínum góða árangri með þeirra hjálp. Hann lét þó aldrei undir höfuð leggjast að æfa hinar sérstæðu æfingar sprett- hlauparans af mikilli alúð. Lyftingatækin urðu aldrei að aðalatriði æfínga hans heldur einvörðungu mjög notadrjúgt hjálpartæki. McDonald Bailey átti mjög langan og glæsilegan feril að baki sem spretthlaup- ari þegar hann lagði hlaupaskóna á hill- una, og sem afreksmaður í spretthlaup- 16 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.