Skinfaxi - 01.02.1972, Blaðsíða 18
Alltof algeng sjón er að sjá hlaupara örmagn-
ast eftir keppni. GÓ5 þrekþjálfun hefur stór-
lega fækkað slíkum atburðum á síðari árum.
Sumu íþróttafólki finnst það ná betri
árangri með því að blanda æfingunum
saman á uppbyggingatímanum. Það get-
ur ekki fellt sig við sérstaka æfingadaga
fyrir lyftingar og tekur þess vegna þann
kost að taka nokkrar lyftingaæfingar með
hinum daglegu æfingum sínum.
Þess vegna er það ráð mitt til þeirra
sem æfa, að reyna báðar aðferðirnar og
velja síðan þá aðferðina sem því finnst
betur gefast og þeir ná betri árangri með,
því að trú þess sem æfir, á æfingar sínar
og æfingaaðferð er hálfur árangurinn.
Magn lyftinga á æfingatíma
Ekki er talið ráðlegt að taka fyrir
meira en 6—8 æfingar með lyftinga-
tækjum að viðbættum þeim æfingum
sem kunna að falla inn í upphitunina, a.
m. k. ekki fyrr en viðkomandi er orðinn
þaulvanur lyftingaæfingum.
Æfingarnar með lyftingatækjunum eru
mun erfiðari en þær sýnast vera í fljótu
bragði, og þess vegna kann það tæpast
góðri lukku að stýra, ef hver einstakur
æfingatími er gerður of erfiður með því
að taka fyrir of margar æfingar hverju
sinni.
Síðar, þegar líkaminn hefur styrkzt að
mun vegna hinna reglubundnu lyftinga-
æfinga, má bæta við nýjum æfingum,
skijrta um æfingar og breyta prógramm-
inu eftir því sem þörf er á og óskað er
eftir.
Æfingar byrjandans
Sá sem aldrei hefur notað lyftinga-
tæki áður né æfingar með þeim, gerði
rétt í að nota æfingarnar á eftirfarandi
hátt, svo sem mælt er með í flestum þeim
bókum sem um lyftingar fjalla:
Fyrstu tvær vikumar skal nota þyngd-
ir sem eru vel viðráðanlegar og tíminn
notaður til að læra æfingamar og hvem-
ig beita skuli vöðvunum við framkvæmd
þeirra.
I þessu sambandi má oft lesa og heyra
talað um að þyngdir þær sem unnið er
með, skuli þá vera um 60% af þeirri
þyngd sem viðkomandi getur haft mesta
og framkvæmt æfinguna einu sinni með
góðum stíl (góðu lagi).
Bandaríski kúlu-
varparinn Guebner
náði frábærum ár-
angri með þvi að
nota þyngdir við
æfingar.
18
SKINFAXI