Skinfaxi - 01.02.1972, Page 26
Samtíð og framtíð
Starfið á
fjarlægu landshorni
í bréfi frá Viðari Friðgeirssyni, form.
umf. Austra á Raufarhöfn til UMFÍ segir
m. a.:
— Nú um áramótin tóku gildi nýjar
reglur hjá Getraunum, sem e.t.v. eiga eft-
ir að gera okkur úti á landsbyggðinni
svolítið erfitt fyrir, en það er að ekki
verða teknir til greina þeir seðlar, sem
berast eftir kl. 2 á laugardögum. Við eig-
um sjálfsagt eftir að fá nokkur umslög í
hausinn aftur, þar eð við getum ekki ráð-
ið veðrinu, og þó að ég gangi frá upp-
gjörinu hér á mánudagskvöld, getur oft
orðið tvísýnt að það nái í tæka tið.
í haust hefur félagið verið með „opið
hús“ einu sinni viku, og verður svo áfram
fram eftir vetri eða til vors. Þar iðkum
við badminton og borðtennis og spilum
„bobb“ ásamt öðru því, sem okkur dettur
í hug og aðstæður leyfa.
Áhugi fyrir boltaleikjum er alltaf tals-
verður, en þar vantar okkur húsnæðið,
þar sem félagsheimilið er of fíngert til
að þola slíkan darraðardans.
Aðaltilgangurinn með bréfinu er nú
samt að gerast aðili að leikritasafni
UMFÍ ....
Jón Pétursson,
HSH.
Tilgangur og ánægja
í athyglisverðri ræðu á ársþingi HSH,
sagði formaðurinn, Jón Pétursson, m. a.:
— Enn eru það iþróttirnar, sem gefa
fólki kost á hollu og heilbrigðu lifi, lifi
ógleymanlegra viðburða, samverustunda
með góðum félögum, viðburða, sem aðeins
geta gerzt meðan likaminn er ungur, heil-
brigður og hraustur. Sérhver ungur mað-
ur þarf að eiga löngun og þrá, áhuga og
takmark, svo að lifið veiti honum ánægju,
fyllingu og tilgang og til þess að eyða
tómleikanum, lifsleiðanum, stefnuleys-
inu, sem óneitanlega er að verða mjög
áberandi hjá mörgu ungu fólki og leiðir
til aukinnar áfengisnotkunar.
í sambandi við yfirlit sitt um fjárhag
HSH, sagði Jón m. a.:
— í sambandi við fjáröflun ungmenna-
félaga sýslunnar vil ég minnast á, að
26
SKINFAXI