Skinfaxi - 01.12.1973, Page 7
Hraði og léttleiki einkenndi
leik Kínverjanna. Hér eru þeir
í tvíliöaleik í Laugardalshöll-
inni og allir leikmenn á fleygi-
ferð. (Ljósm. Gunnar)
helst Akureyri og Siglufjörður og svo
UMSK og Skarphéðinn. En víða úti um
land væri borðtennis iðkað í skólum. UMSK
hefði haldið sérstök mót innan síns héraðs,
en annars hefði fyrst og fremst verið keppt
í Reykjavík.
Varðandi aðstöðuna til að iðka þessa
w. íþrótt úti um landið sagði Sveinn að í flest-
um eða öllum sveitum væru aðstæður til
að iðka borðtennis. Félagsheimili af öllum
stærðum væru t. d. vel til þess fallinn og
hægt væri að nota ódýr borð fyrst í stað
þótt þau væru ekki fullkomin. Þegar fer
að Hða að vori, hefur Borðtennissambandið
í hyggju að senda leiðbeinendur út á land.
Sveinn sagðist vilja hvetja allt áhugafólk
til að snúa sér til sambandsins sem gæti
veitt |)ví upplýsingar og ýmsa fyrirgreiðslu.
Þess má geta að verið er að vinna að
nýrri útgáfu af borðtennisreglum og í und-
irbúningi er útgáfa handbókar í lausblaða-
formi þar sem m. a. verða tæknilegar upp-
< lýsingar.
Þess má að lokum geta að skrifstofa
UMFÍ hefur orðið vör við verulega aukinn
ahuga á borðtennis síðan Guðmundur Þór-
arinsson skrifaði greinar sínar í Skinfaxa um
þessa íþrótt og gaf hagnýta fræðslu um iðk-
un hennar. Hefur skrifstofa UMFÍ útveg-
að mörgum útbúnað og reglur um þessa
íþrótt, sem án efa á mikla framtíð fyrir sér
hér á landi.
Greinar Guðmundar Þórarinssonar um
borðtennis eru í 4. og 5. hefti Skinfaxa ár-
ið 1970.
Sveinn Áki Lúðvíksson formaður Borðtennis-
sambands íslands rœðir við tvo úr kínverska
liðinu.
SKINFAXI
7