Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1973, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.12.1973, Blaðsíða 13
heimsmet, heldur líka vegna óvenjulegs ])okka. En hún er aðeins 14 ára gömul. Hún sigraði í 100 m flugsundi og í 100 m skriðsundi þar sem hún bætti eigið heims- met niður í 57,54 sek. I 200 m fjórsundi varð hún samt að lúta í lægra haldi fyrir löndu sinni Andreu Hubner sem er 16 ára og jafnaði heimsmet Korneliu — 2.20,51 mín. í 400 m fjórsundi var Angela Franke, 15 ára austurþýsk stúlka talin sigurstrang- legust, en 18 ára landa hennar, Gudrun Wegner sigraði á 4.57,51 mín. Hin vinsæla íþróttakona Shane Gould frá Ástralíu sem vann þrenn gullverðlaun áá olympíuleikunum í fyrra, er hætt keppni, og nú komst áströlsk stúlka hvergi framar en í fjórða sæti. En þó að þessar kornungu austurþýsku stúlkur sópuðu að sér athyglinni, var samt einn óvenjulegur afreksmaður meðal aust- urþýsku karlanna, en hann lætur ekki mik- ið yfir sér. Samt hefur hann verið ósigrandi í baksundi í 6 ár samfleytt. Þetta er Roland Matthes sem enn er aðeins 22 ára gamall og stundar háskólanám í íþróttafræðum en er Andrea Hubner, 16 ára, sigraði í 200 m fjórsundi og jafnaði heimsmet Korneliu Ender. Kornelia Ender, 14 ára, á þrjú heimsmet. líka trommuleikari og mótorhjólsknapi. Hann vann tvenn gullverðlaun á heims- meistaramótinu. 100 m baksund vann hann á 57,47 og 200 metrana vann hann á nýju heimsmeti — 2.01,87 og gamla metið átti hann líka. USA sterkast í karlagreinum í karlagreinunum fengu Bandaríkjamenn nokkra uppreisn, en þar unnu þeir 8 af 15 sundgreinum og fengu 204 stig en Austur- Þjóðverjar aðeins 97 en voru þó í öðræu sæti. Sundknattleikskeppnina unnu Ung- verjar. Bandaríkjamenn fengu 15 af sam- tals 37 gullvreðlaunum (líka var keppt í dýfingum), en þeir undu illa við sinn hlut og höfðu gert sér vonir um miklu betri ár- angur. Liðið naut ekki styrks olympíukapp- ans frá í fyrra, Mark Spitz, sem er hættur keppni, en margt efnilegt ungt fólk er komið í bandaríska landsliðið. Af karlmönnum vöktu einna mesta at- hygli á mótinu þeir Jim Montgomery frá Bandaríkjunum og Steve Holland frá Ástralíu, en hann er aðeins 15 ára gamall. skinfaxi 13

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.