Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1973, Qupperneq 23

Skinfaxi - 01.12.1973, Qupperneq 23
SVEINAMETHAFINN í KRINGLUKASTI ÞRÁINN HAFSTEINSSON setti 11 íslandsmet í sveinaflokki á árinu Þráinn Hafsteinsson, hinn kornungi frjáls- íþróttamaður úr Skarphéðni, hefur átt ó- venju glæsilegan íþróttaferil í ár og sett 11 íslandsmet í sveinaflokki. Þráinn varð 16 ára á þessu hausti. Nú síðast bætti hann sveinametin í kúluvarpi innanhúss: drengja- kúlunni varpaði hann 13.98 m og karlakúl- unni 12.00 m. í sumar setti Þráinn 7 sveinamet í kringlukasti og bætti metin með öllum þyngdum. Sveinakringlunni kastaði hann 61.76 m og bætti met Óskars Jakobssonar IR um 4,6S m. Með drengjakringlu bætti hann metið fjórum sinnum og kastaði lengst 48.24 m. Áður átti Óskar Jakobsson metið, og var það 45.78 m. Karlakringlunni kastaði hann 39.29 m og bætti 19 ára gamalt met Ulfars Björnssonar UIA um 14 sm. En Þráinn er liðtækur í fleiri greinum. Hann stökk 1.80 m í hástökki sem er 8. besti árangur í þeirri grein á landinu í ár. Þá brá hann sér í spjótkastskeppni fullorð- inna á héraðsmóti HSK í sumar og sigraði með 47.96. Að lokum skal þess getið að Þráinn setti einnig sveinamet í fimmtarþraut. Hann hlaut 2552 stig og bætti met Elíasar Sveins- sonar ÍR um 129 stig. Þetta er þriðji besti fimmtarþrautarárangur á landinu í ár. í einstökum greinum var árangur hans þessi: langstökk 5.40, spjótkast 43.64, 200 m hlaup 26.5, kringlukast 39.05 og 1500 m hlaup 4.54,9. Þráinn er nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þráinn Hafsteinsson. SKI NFAXI 23

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.