Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1973, Page 33

Skinfaxi - 01.12.1973, Page 33
v\MiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiMiiiiiiiimitiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii > Frá starfi ungmennafélaganna ''illllllMIIIMIMIMIMMIMMIMMMIIIMIIIMIIIMIIIMMIIMIMMIMIIIMIMIIIIIIMIIMIIIMIMIIIIMIMMIIMIIIIMMMMIIMIIIMIIIIMIIMIIMIMMMIMMMMIMIIIMMIIIIIM^ F ormannaf undur Ungmennasambands Skagafjarðar í lok október komu nokkrir úr forustuliði UMSS saman til fundar á Sauðárkróki. Pundurinn var haldinn til þess að ræða sameiginleg áhugamál hinna ýmsu félaga °g gera nokkra áætlun urn vetrarstarfið. - Stefán Pedersen form. UMSS setti fundinn °g ræddi störf sambandsins á sl. sumri og fyrirætlanir stjórnarinnar um vetrarstarfið. Þar kom fram að mikið líf var í félagsstarf- inu í sumar og íþróttir æfðar og kenndar á sex stöðum i héraðinu. Þrir íþróttakenn- arar önnuðust þessa kennslu en það voru Margrét Gunnarsdóttir, Friðbjörn Stein- grimsson og Magnús Jónatansson. Miklar unrræður urðu unr vetrarstarfið °g var sérstaklega fjallað um nauðsyn auk- innar félagsmálafræðslu og var ákveðið að efna til þriggja námskeða er halda skal á Sauðárkróki, Hofsósi og Miðgarði við Varmahlið. Hvert námskeið á að standa í finrm kvöld. Stjórnandi þessara námskeiða «, verður Ingim. Ingmundarson, en hann hef- 11 r sótt námskeið Æskulýðsráðs ríkisins fyrir leiðbeinendur slíkra námskeiða. Rætt var um það framtak Umf. FRAM 1 Seyluhreppi að hafa svokallað OPIÐ HÚS í félagsheimilinu Miðgarði. Þessi starfsemi hófst sl. vetur og gaf það góðan árangur að sögn form. FRAM, Kristjáns Sigurpálssonar, að sjálfsagt þótti að halda áfram nú í vet- ur. Nú er OPIÐ HÚS tvö kvöld i viku og una menn sér þar við ýmsa leiki og íþróttir. Mikill áhugi kom fram hjá fundarmönnum um að koma þessu á víðar þar sem aðstæður leyfa svo sem á Hofsósi þar sem nú er verið að taka í notkun nýtt félagsheimili. Á síðasta ársþingi UMSS var ákveðið að kanna möguleika á ráðningu framkvæmda- stjóra fyrir sambandið. Af fjárhagsástæðum hefur ekki orðið af þessari ráðningu, en fundurinn samþykkti að fela stjórninni að leita samstarfs við bæjarstjórn Sauðárkróks og sýslunefnd Skagafjarðar um ráðningu manns er gæti annast æskulýðsmál fyrir þessa aðila sameiginlega. Það er von manna að með því móti megi ráða fram úr þessum vanda. Annars var mikið rætt um fjármál sambandsins og félaganna og ýmsar hug- myndir komu fram og verða þær væntan- lega reyndar á næstunni. Því miður verður það að segjast að lítill áhugi virtist vera fyrir happdrættisútgáfu UMFÍ og eru menn þreyttir á stöðugum ágangi miðasölumanna. Þó voru menn ákveðnir í því að gera sitt bezta til að koma út þeim miðum er hingað bárust. Að loknum löngum og góðum fundi drukku fundarmenn kaffi í boði UMSS. Fulltrúar frá 8 félögum innan sambandsins sátu þennan fund auk stjórnarmanna UMSS. skinfaxi 33

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.