Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1977, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.02.1977, Blaðsíða 5
Gunnar Kristjánsson. Ritstjóraskipti á Skinfaxa Eysteinn Þorvaldsson. GUNNAR KRISTJÁNSSON hefur nú verið ráðinn ritstjóri Skinfaxa og er þetta fyrsta eintak blaðsins sem hann ritstýrir. Gunnar er okkur vel kunnur að störfum sínum innan hreyfingar- innar en hann er nú formaður HSH, og hefur einnig starfað sem fram- kvæmdastjóri sambandsins. Gunnar er Grundfirðingur að ætt, 26 ára gam- all og kennari að mennt. Hann hyggur á frekara nám og er nú nemandi í öldungadeild Menntaskólans í Hamra- hlíð og mun ljúka þaðan stúdents- prófi í vor. Með ráðningu fasts starfs- manns við blaðið er þess vænst að meiri festa skapist í útgáfu þess og er hér með skoraö á menn að leggja hin- um nýja ritstjóra lið með skrifum í blaðið, öflun frétta og mynda og á- bendingum um efni. Hreyfingin vænt- ir sér góðs af störfum Gunnars og býð- úr han velkominn til starfa. EYSTEINN ÞORVALDSSON, sem ver- iS hefur ritstj óri Skinfaxa undanfarin ár, lætur nú af störfum að eigin ósk. Eysteinn tók við ritstjórn blaðsins 1969 og hafði raunar annast útgáfuna nokkur árin ásamt Eiríki J. Eiríkssyni, en þá voru ritstjórarnir tveir. Með tilkomu Eysteins á blaðið breytti það nokkuð um svip, varð líflegra í útliti og uppsetningu, flutti fjölbreyttara efni en áður og heftunum fjölgaði í sex á ári. Skinfaxi og hreyfingin í heild standa í mikilli þakkarskuld við Eystein fyrir störf hans við blaðið, en þau voru nánast ólaunuð, og unnin við erfið skilyrði þar sem fé til útgáf- unnar hefur jafnan verið af skornum skammti. Þótt Eysteinn láti nú af störfum við blaðið væntum við þess að við njótum ráða hans og þekkingar varðandi útgáfuna hér eftir sem hingað til. Ég færi Eysteini þakkir okkar á skrifstofunni fyrir ánægjulegt sam- starf og hreyfingin í heild þakkar honum vel unnin störf. Sigurður Geirdal. SKINFAXI 5

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.