Skinfaxi - 01.02.1977, Blaðsíða 26
KARLAR:
50 m. skriösund sek.
Páll Sigurðsson, V 34,4
Ágúst Leósson, V 35,4
Sigurgeir Sigurgeirsson, V 43,0
50 m. bringusund sek.
Lúðvík Smárason, R 47,2
Sigurgeir Sigurgeirsson, V 50,6
Böðvar Kristófersson, V 54,4
Steingrímur Leifsson, V 58,1
4x25 m. fjórsund mín.
Páll Sigurðsson, V 1:29,7
Ágúst Leósson, V 1:34,0
100 m. bringusund min.
Ágúst Leósson, V 1:33,5
Páll Sigurðsson, V 1:37,5
50 m. baksund sek.
Páll Sigurðsson, V 43,0
Lúðvík Smárason, R 51,2
Sigurgeir Sigurgeirsson, V 60,4
4x25 m. boðsund mín.
A-sveit Víkings 1:24,7
Páll, Ágúst, Böðvar, Sigurgeir
Fréttatilkynning frá Ungmf. Bolungarvikur
Laugardaginn 2. apríl sl. minntist
Ungmennafélag Bolungarvíkur 70 ára
afmælis síns með hátíðafundi í Fé-
lagsheimili Bolungarvíkur. Á dagskrá
var m.a. ávörp, rakin var saga félags-
ins, kórsöngur og kaffiveitingar. Einn-
ig var haldin sýning á myndum, fund-
argerðarbókum, blaði félagsins Ása-
Þór, og fleiri munum úr starfi félags-
ins.
Ungmennafélag Bolungarvíkur var
stofnað 1. apríl 1907, fyrsti formaður
þess var Jóhann J. Eyfirðingur. Marg-
vísleg mál hefur félagið látið til sín
taka á þessum 70 árum; það beitti sér
fyrir stofnun unglingaskóla, og var
hann stofnaður árið 1928.
Félagið byggði sundlaug í Bolungar-
vík árið 1932, sem þá var fyrsta kola-
kynta sundlaug landsins. Félagið átti
drjúgan þátt í byggingu Félagsheim-
ilis Bolungarvíkur, og var á fundi þess
fyrst rætt um byggingu þess.
Á þessum árum lagði félagið mikið
upp úr leikstarfsemi, frjálsum íþrótt-
um svo og almennri félagsstarfsemi.
Nú hin síðari ár hefur félagið lagt
áherslu á æskulýðs- og íþróttamál, og
má segja að starfið sé blómlegt í ýms-
um greinum, og má þar nefna knatt-
spyrnu, skák og skíðaiðkun, einnig
bindur félagið miklar vonir við nýju
sundlaugina sem nýlega hefur verið
tekin í notkun í Bolungarvík.
Fyrir nokkrum árum festi félagið
kaup á skíðatogbraut, og nú í tilefni
afmælisins festi félagið kaup á nýrri
450 m togbraut, sem er af Dobbel-
26
SKINFAXI