Skinfaxi - 01.02.1977, Blaðsíða 7
Þakkir skulu færðar
Við afgreiðslu fjárlaga þessa árs
hækkuðu fjárveitingar Alþingis til
íþróttahreyfingarinnar, þ.e. UMFÍ og
ÍSÍ um 75% frá fjárlögum sl. árs, þó
öllu meira til UMFÍ eða um 118%
milli ára, úr 4.6 millj. kr. í 10 millj. kr.
Þennan góða stuðning ber vissulega
að þakka og þeim sem þar að unnu.
Hér er um verulega leiðréttingu að
ræða og ótvíræða viðurkenningu af
hálfu alþingismanna á hinu fjölþætta
starfi sem unnið er að á vegum ung-
mennafélagshreyfingarinnar í land-
inu.
Þessu til viðbótar njóta félögin svo
styrkja vegna íþróttakennslu úr
Iþróttasjóði samkvæmt árlegum
kennsluskýrslum, og hefur sú fjár-
veiting einnig farið nokkuð hækkandi
síðustu árin, og ber einnig að þakka
Iþróttanefnd ríkisins og framkv.stj.
hennar þá þróun mála. Þá er ótalinn
sá mikli fjárstuðningur sem einstök
úngmennafélög svo og héraðssambönd
njóta um land allt frá sveitarfélögum,
sýslusjóðum og öðrum styrktaraðilum,
allt er þetta ómetanlegur stuðningur
við hið frjálsa iþrótta- og æskulýðs-
starf í landinu og sem gerir okkur
kleift að halda starfseminni gang-
andi.
Um leið og þessa góða stuðnings er
getið, heiti ég á alla forustumenn
ungmennafélagshreyfingarinnar, að
við gerum allt sem í okkar valdi stend-
ur til þess að nýta fjármagnið sem
best, og fyrir sem flesta. Skipulagsmál
okkar þurfa alltaf að vera í stöðugri
endurskoðun, og taka þarf upp mun
víðtækara samstarf um ýmsa rekst-
ursþætti en nú er, ekki síst milli
landshreyfinganna UMFÍ og ÍSÍ. Má
þar nefna: Ferðamál, fræðslumál, er-
indrekstur og útbreiðslustarfsemi, út-
gáfumál, þjálfaramál og bein við-
skiptamál er varða innkaup á íþrótta-
búningum, tækjum og verðlaunagrip-
um fyrir öll íþrótta- og ungmennafé-
lög í landinu, og margt fleira.
H. Þ.
skinfaxi
7