Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1977, Page 13

Skinfaxi - 01.02.1977, Page 13
illll • ll'!;| n n duo I TVyeWAOUGT tlDSSKWFT • IDfiÆT I TEORI 00 PHAKSÍS Merk nýjung Rit um tæknileg og undirstööuat- riöi og þjálfun hinna ýmsu íþrótta- greina hafa löngum þótt hið merkasta þarfaþing, þeim sem við íþróttaiökun fást. í Danmörku hefur hafið göngu sína blað um þessi mál. 1. tbl. þessa blaðs, þulur, ræðumaður svo af bar og hrók- ur alls fagnaðar hvar sem hann fór. Við minnumst hans með virðingu og þökk fyrir samfylgdina og störfin á vettvangi ungmennafélaganna. Eftirlifandi konu hans Elínu Ósk- arsdóttur svo og ættingjum öllum vottum við samúð og biðjum þeim blessunar og velfarnaðar. Hafsteinn Þorvaldsson, form. UMFÍ. sem heitir Focus, kom út sl. febrúar. Ritstjóri blaðsins er Ole Schöler sem er mörgum íslendingum góðkunnur fyrir þátt sinn í þjálfun íslensks íþróttafólks. Blaðið á að koma út 6 sinnum á ári (1.10., 1.12., 1.2., 1.6., 1.8.). í þessu fyrsta tölublaði eru m. a. greinar um blak þar sem fjallað er um lágvörn og þjálfun hennar, grein um kerfisbundna kennslu frjáls- íþrótta, þar sem einstakar greinar eru teknar fyrir. íþrótt mánaðarins er nafn einnar greinarinnar, og er ætlunin að undir þessum titli verði fjallað um íþrótta- greinar sem sjaldan eru í sviðsljósinu. í þetta sinn er „Baseball“ eða amer- ískur sláknattleikur tekinn til með- ferðar. Þá er fótbolti á dagskrá, grein um upphitun, fræðilegar greinar um vökvaþörf við ákveðna áreynslu og lyfjaneyslu toppmanna. Þessu fyrsta tölublaði lýkur svo með grein sem nefnist Trimm í vikulokin. Allar þessar greinar eru skrifaðar af sérfróðum mönnum, sem hafa sér- menntun hver í sinni grein. Blað þetta á erindi til allra sem láta sig íþróttir varða, jafnt þjálfara, íþróttakennara, sem almennra þátt- takenda. Málfar er aðgengilegt fyrir þá sem eitthvað hafa lært í dönsku, og á meðan slíkt rit kemur ekki út á íslensku verður hver að láta sig hafa það að lesa dönskuna. Þeir sem áhuga hefðu á að gerast áskrifendur geta snúið sér til skrif- stofu UMFÍ, Klapparstíg 16, Reykja- vík, sími 12546. Áskriftargjaldið er 95 kr. danskar eða ca 3000 kr. íslenskar. SKINFAXI 13

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.