Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1977, Page 19

Skinfaxi - 01.02.1977, Page 19
Ársþing ÍBÓ Laugardaginn 19. febr. sl. var árs- þing ÍBÓ haldið á Ólafsfirði. Að ýmsu leyti var þetta tímamóta- þing hjá ÍBÓ þar sem veigamiklar skipulags- og lagabreytingar voru gerðar í þeim tilgangi að hleypa nýju lífi í starfsemina og beina henni inn á nýjar brautir til að auka þáttöku og fjölbreytni í starfi. Má þar fyrst nefna að þingið sam- þykkti samhljóða tillögu sem borin var fram af formönnum allra deildar- félaga ÍBÓ þar sem stjórninni var falið að óska eftir inngöngu í Ung- mennafélag íslands. í framhaldi af þessari tillögu voru gerðar nokkrar breytingar á gildandi lögum og nefn- ast samtökin nú Ungmenna- og íþróttasamband Ólafsfjarðar, skamm- stafað ÚÍÓ. Á þessu þingi gerðist Golfklúbbur Ólafsfjarðar aðili að sambandinu. Vaxandi áhugi er á Ólafsfirði fyrir íþrótta- og félagsstarfi og ríkti bjart- sýni á þinginu varðandi framtíðina. Gestur þingsins var Sigurður Geir- dal, frkvstj. UMFÍ og flutti hann er- indi um skipulag og starfshætti ung- mennafélagshreyfingarinnar í land- inu og svaraði fyrirspurnum þingfull- trúa um sama efni að því loknu. Þá var fjallað um fjármál sam- bandsins, uppbyggingu íþróttamann- virkja og ýmis framtíðarverkefni og að lokum fóru fram kosningar í hinar ýmsu trúnaðarstöður. í stj órn ÚÍÓ voru eftirtaldir kosnir r Form. Stefán B. Ólafsson, Golfklúbbi Ólafsfjarðar; meðstj.: Ármann Þórð- arson, Umf. Vísi og Magnús Stefáns- son, Leiftri. - Varastjórn: Sveinbjörn Árnason, Umf. Vísi; Björn Þ. Ólafs- son, Leiftri og Stefán B. Einarsson, Golfkl. Ólafsfjarðar. (Fréttatilk. frá UÍD). félagsmálanámskeið í öllum félögum nema einu og í mörgum þeirra fleiri en eitt, hefur skipulögð félagsmála- kennsla farið fram í Grunnskóla Garðabæjar frá árinu 1974. Hefur nú verið komið upp svokölluðu áfanga- kerfi sem skiptir námsefninu í 5 stig, hefst fyrsta stig í barnaskólanum. Fé- lagsmál eru síðan valgrein í efri bekkjum Grunnskólans. Um kennsl- una sjá þeir Sveinn Vilhjálmsson og Ævar Harðarson. Snúum okkur þá aftur að þinginu. Tvö ný félög gengu í UMSK á þing- inu, Siglingaklúbbur Garðabæjar og íþróttjafélag Kópavogs. Eru félögin innan UMSK þar með orðin 12 að tölu, en því fylgir sú kvöð að fjölga verður í stjórn sambandsins; lög þess kveða á um að einn fulltrúi frá hverju félagi sitji í stjórn sambandsins. Um það leyti er nefndir tóku til starfa varð Skinfaxi að hverfa af staðnum. Hann fregnaði síðar að vel hefði verið unnið í nefndum og að þinginu hefði lokið jafnfriðsamlega og það hófst, stjórnin hefði haldið velli utan þess að tveimur nýliðum var bætt við. SKINFAXI 19

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.