Skinfaxi - 01.02.1977, Síða 20
FERÐASAMNINGUR
Á síðastliðnu ári gerðu ÍSÍ og UMFÍ
samning við Ferðamiðstöðina hf. um
vikulegar hópferðir til Norðurland-
anna á vægu verði, þ. e. 50% af gild-
andi fargjöldum. Þetta auðveldaði
mjög okkar erlendu samskipti og tókst
vel í alla staði. í ljósi þessarar reynslu
hafa UMFÍ og ÍSÍ nú endurnýjað
samning sinn við Ferðamiðstöðina hf.
Þar sem um nokkrar smávægilegar
breytingar er að ræða frá þvi í fyrra,
verður nú gerð grein fyrir aðalatrið-
um samningsins.
Á tímabilinu frá 16. april til 22.
október er um 41 ferð að ræða, þar af
36 til Kaupmannahafnar og 5 til
Stokkhólms (sjá hjálagðan lista). Hér
er því um mun fleiri ferðir að ræða
en í fyrra.
Fargjöldin eru miðuð við svokölluð
„Public Excursion“-kjör, en þau kveða
á um að ferðin verði að taka minnst 8
daga og mest 21 dag, hins vegar er nú
heimilt að hafa viðdvöl á þeim stöð-
um þar sem millilent er, en það var
ekki mögulegt samkvæmt gamla
samningnum. 21 degi fyrir brottför
ber okkur að hafa tilbúinn hóp í
hverja ferð. 25—40 sæti hafa verið
pöntuð í hverja ferð en lágmarks-
stærð hópa á Excursion-kjörum er 15
manns. Verði myndaðir stærri hópar
en 30 manns með nægum fyrirvara er
möguleiki á svokölluðum „Common
interest“-fargjöldum sem eru ca. 1500
krónum ódýrari.
Athygli skal vakin á því, að þessi
kjör standa öllum félögum innan
íþrótta- og ungmennafélaganna til
boða, en eru ekki bundin við íþrótta-
fólk eða keppnishópa eingöngu. Þá
bendum við á að hóparnir þurfa ekki
endilega að vera frá einum stað eða
félagi, þeir myndast með pöntunum
einstakra manna viðs vegar að. At-
hygli einstaklinga sem hyggja á ferða-
lög er vakin á þessu.
Samkvæmt framangreindum skil-
málum verður fargjald til Kaup-
mannahafnar kr. 48.470, og til Stokk-
hólms kr. 55.665, og lætur því nærri
að afslátturinn sé 42%. Flugvallar-
skattur er kr. 1500.
Þá skal þess getið að skv. samningn-
um býður Ferðamiðstöðin hf. nokkur
sæti í vorferðum til sólarlanda á
mjög vægu verði, er ungmenna- og
íþróttafélög gætu hugsanlega notfært
sér í fjáröflunarskyni, t. d. sem vinn-
inga á Bingókvöldum, í happdrættum
o.s.frv. Þeir sem hug hafa á slíku eru
beðnir að snúa sér til skrifstofu UMFÍ.
Allar nánari upplýsingar varðandi
þessar ferðir lætur Ferðamiðstöðin hf.
í té. Ferðamiðstöðin hf. tekur á móti
pöntunum, gefur út farmiða, tekur á
móti greiðslum og annast alla aðra
þjónustu við farþega. Heimilisfang
20
SKINFAXI