Skinfaxi - 01.12.1977, Blaðsíða 4
Af útgáfustarfi
Völsungur 50 ára
íþróttafélagið Völsungur á Húsavík
varð 50 ára á þessu ári. Skinfaxa barst
nýlega myndarlegt rit sem gefið var
út af því tilefni. í riti þessu, sem er
hið glæsilegasta að öllum frágangi,
fróðlegt og skemmtilegt aflestrar, er
meðal annars efnis, ávarp formanns,
Þormóðs Jónssonar, sem verið hefur
formaður Völsungs frá 1958 eða lengst
allra formanna félagsins, greinar og
frásagnir af þeim íþróttum sem iðk-
aðar hafa verið hjá Völsungi í gegnum
árin, grein eftir Þráin Kristjánsson,
sem nefnist „Rödd frá elstu dögum
Völsungs". Þá eru ferðasögur og ýmis-
legt efni annað sem fróðlegt er að
hnýsast í.
í ritnefnd blaðsins eru þeir Sigurjón
Jóhannesson, skólastjóri á Húsavík,
sem jafnframt ritstýrir því, Ásmundur
Björnsson og Birgir Steingrímsson.
UNGMENNASAMBAND
W*í) SKAGAFIARDAR
un FRÉTTABRÉF wov£mbir~]
Ungmennasamband Skagafjarðar
hefur tekið upp þráðinn að nýju og
gefið út fréttabréf. í fréttabréfinu,
sem er snyrtilega unnið og fjölritað,
er sagt frá því sem verið hefur að
gerast á sl. sumri bæði hjá einstökum
félögum og sambandinu sjálfu og
einnig kemur fram ýmiss konar fróð-
leikur heimamönnum jafnt sem öðr-
um til gagns og ánægju.
4
SKINFAXI