Skinfaxi - 01.12.1977, Blaðsíða 11
tngimundur
Ingimundarson
fyrirhugað námskeið hjá Umf. Reyk-
dæla strax eftir áramótin.
Aðspurður um leikstarfsemi, kvað
Ófeigur hana með miklum blóma og
væru nokkur ungmennafélög þegar
tekin til við æfingar, en þau félög sem
hygðust sýna á þessum vetri væru
Umf. Skallagrimur, Borgarnesi, Umf.
Reykdæla, Umf. íslendingur og Umf.
Stafholtstungna. Þá væru tvö ung-
mennafélög aðilar að Leikflokknum
Sunnan Skarðsheiðar.
Ófeigur sagði að Umf. íslendingur
hefði fyrr í vetur verið með kvöld-
vöku þar sem fluttir voru leikþættir.
Að lokum sagði Ófeigur að vegna
þess hve félagatala hefði vaxið hægt
hefði sambandið hvatt ungmennafé-
lög til að halda útbreiðslu- og kynn-
ingarfundi og verður Umf. Borg í
Borgarhreppi fyrst til að ríða á vaðið
með því að halda slíkan fund nú á
næstunni.
Vetrarstarf Víkverja hafið
Æfingar í glímu og frjálsum iþrótt-
um verða í vetur sem í fyrravetur opn-
ar öllum ungmennafélögum og er
skólafólk sérstaklega hvatt til að not-
færa sér þessar æfingar. Æfingarnar
verða undir stúkunni við Laugardals-
völlinn í „Baldurshaga“ sem hér segir:
Glíma — 12—15 ára
Mánudaga kl. 18.50—19.30
16 ára og eldri:
Fimmtudaga kl. 19.30—20.30
Frjálsar íþróttir:
Miðvikudaga kl. 21.20—23.00
Föstudaga kl. 20.30—22.10
Lyftingar;
Föstudaga kl. 22.10—23.00
S K I N F A X I
11