Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1979, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.02.1979, Blaðsíða 18
STOFNAÐ 29. SEPT- 1929 íþrótta- maður UMFK 1978 Sigmar Bjömsson íþróttamaður UMFK 1978. Nýlega kaus Ungtnennafélag Kefla- víkur íþróttamann ársins 1978. Þetta var í annað skipti sem slíkt kjör fer fram. í fyrra hlaut Gísli Torfason knatt- spyrnumaður titilinn en að þessu sinni varð Sigmar Björnsson fyrir valinu. Sig- mar hefur um árabil verið einn fremsti bringusundsmaður landsins. Á sl. ári vann hann það afrek á landsmóti UMFÍ að hljóta fjóra verðlaunapeninga, þar af eitt gull fyrir 200 m bringusund. Sigmar hlaut einnig afreksbikar karla á Sund- meistaramóti Keflavíkur auk fleiri verð- launa. í hófi sem UMFK hélt Sigmari til heiðurs var honum afhent vegleg verð- launastytta til varðveislu í eitt ár og einnig minni stytta til eignar. 18 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.