Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1979, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.02.1979, Blaðsíða 4
Sigurjón Bjarnason: Gróðurreitur íslenskrar æsku Grein Þórðar Pálssonar í 6. tbl. Skinfaxa 1978 hefur orðið mér tilefni nokkurra hug- leiðinga um framtíð Þrastaskógar, og hag- nýtingu hans i þágu eigandans, sem er ung- mennahreyfingin í landinu. í upphafi verð ég að játa, að þó að ég hafi starfað í ungmennafélögum um all- langt skeið, vissi ég ekkert um þessa ómetanlegu eign hreyfingarinnar fyrr en fyrir 2—3 árum síðan, og i fyrsta sinn s.l. vor gekk ég um skóginn í fylgd með kunn- ugum mönnum. Ekki get é hælt umgengninni í skóginum, og varla hefur hún batnað síðan föstum umsjónarmanni var sagt lausu starfi. En skógurinn er fallegur og svæðið stór- kostlegt. Já, uppi hafa verið hugmyndir um að hvert héraðssamband eignaðist sumarhús í skóginum. Þetta finnst Þórði fráleit hug- mynd, og finnst mér hann telja skóginn og lífríki hans glatað, ef af því verður. Hann gefur sér þá forsendu, að öll gróð- ursetning i skóginum sé endanlega úr sög- unni, verði þessi sumarhús reist þar og fólk dvelji í þeim yfir sumartimann. Ég skil ekki hvers vegna þetta þarf svo að vera. Ég held að ef að lífriki skógarins sé svo dýrmætt, sem Þórður vill vera láta, ætti fólk að eiga þess kost að kynnast því og læra að umgangast það, þannig að það ekki spillist, heldur taki enn frekari framförum. Markmið ungmennahreyfingarinnar er ræktun lands og lýðs. Ötullega hefur verið unnið að þessu marki frá stofnun samtak- anna. En það hefur aldrei verið hægt að troða því inn í hausinn á mér að ræktun lands og ræktun lýðs geti ekki farið saman. Ræktun landsins þurfi að gerast í felum ef árangur á að nást. Mér sýnist að Þrastaskógur geti orðið mjög merkileg félags- og menningarmið- stöð ef rétt er á málum haldið. Eða hvað hugsaði Þórður Pálsson, er hann þökulagði íþróttavöllinn i eina tíð. Átti hann lika að verða einn af leyndar- dómunum, sem æskan skyldi fá í arf án þess að fá að njóta hans á nokkurn hátt? Nei, hér er margt verkið að vinna: 1. Skipa verður á ný umsjónarmann með 4 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.