Skinfaxi - 01.10.1980, Side 8
Frá
Frjálsíþróttcisam-
A
bandi Islands
Viðtal við Örn Eiðsson
Örn Eiðsson er formaður Frfáls-
íþróttasambands Islands. Við hittum
Orn að máli til að kynnast sambandinu
nánar og lögðum fyrir hann nokkrar
spurningar. Órn brást vel við og leysti
greiðlega úr þeim.
Hvenær var Frjálsíþróttasam-
band Islands stofnað?
FRÍ var stofnað 16. ágúst 1947.
Uppgangur frjálsra íþrótta var
mikill á þessum árum og var um-
fangið orðið það mikið að brugðið
var á það ráð að stofna sérsam-
band. Áður haíði íþróttaráð
Reykjavíkur farið með þau mál
sem snertu frjálsar íþróttir í
Reykjavík og þá í samráði við ÍSÍ.
Hvernig er uppbyggingu FRÍ
háttað?
FRI er myndað af héraðsam-
böndum og íþróttabandalögum.
A ársþingum sambandsins er kos-
in 5 manna stjórn og 3 til vara.
Auk þess eru formenn Laganefnd-
ar og Utbreiðslunefndar kosnir og
taka þeir sæti í aðalstjórn. Sam-
bandinu er skipt upp í 4 aðal-
nefndir auk þessara tveggja sem
búið er að nefna eru Tækninefnd,
formaður hennar er fyrsti vara-
maður stjórnar og Víðavangs-
hlaupsnefnd, en formaður hennar
er tilnefndur af stjórninni. Mála-
flokkar þeir sem nefndirnar sjá
um eru:
Laganefnd sér um útgáfu á af-
rekaskrá, lögum og leikreglum
Örn Eiðsson formadur.
sambandsins. Einnig sér hún um
dómaramál og þá þætti er varða
það þegar met eru sett í íþróttinni.
Utbreiðslunefnd sér um, eins
og nafnið bendir til, útbreiðslu í-
þróttarinnar. Hún hefur starfað
vel að unglingamálum og má í því
sambandi nefna Þríþraut FRÍ og
Æskunnar, Andrésar Andar leik-
anna en þar hafa íslensk ung-
menni alltaf staðið sig vel, skóla-
og sjónvarpskeppni FRÍ og
keppni milli héraðskóla.
Tækninefnd sér um þjálfara-
mál. Hún stendur fyrir þjálfara-
námskeiðum og einnig hefur hún
með samskipti við útlönd að gera í
þjálfaramálum.
Víðavangshlaupsnefnd sér um
og skipuleggur víðavangshalup
bæði hér í Reykjavík og úti á
landi. Má geta þess að hún hefur
skipulagt hátt í 20 hlaup í vetur og
eru þau hugsuð með það fyrir
augum að þau séu bæði fyrir
trimmara og keppnisfólk.
Allar þessar nefndir vinna sjálf-
stætt og hal'a skilað góðu starfi.
FRÍ fer með öll meiriháttar mál er
varða frjálsar íþróttir hérlendis og
fer með samskipti við erlenda að-
ila. FRÍ er aðili að Alþjóða Frjáls-
íþróttasambandinu (IAAF) og
Frjálsíþróttasambandi Evrópu
(EAA) og hefur það haft margt
gott í för með sér t.d. voru hér
þjálfarar á kostnað IAAF, haustið
1979 og héldu þeir námskeið fyrir
frjálsíþróttaþjálfara. Árið 1976
var þing EAÁ haldið hér á landi.
8
SKINFAXI