Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1980, Side 9

Skinfaxi - 01.10.1980, Side 9
Frá vinstri: Hasteinn Þórisson, Iris Grönfeldt, Hafdís E. Helgadóttir og Magnús Ottarsson öllfrá UMSB. Unnu bestu afrek ísínum flokki á Táningamóti 1980. Samskipti við Norðurlönd fer sivaxandi t.d. sameiginleg mót. Fyrir stuttu var haldið hér á landi á vegum FRI 37. þing norrænna frjálsíþróttaleiðtoga og sér FRI nú um þingið í fimmta hvert skipti eða til jafns við hin löndin. Hvernig eru tengsl FRÍ við ÍSI og UMFI? Tengslin eru meiri við ISI og er það í fyrsta lagi að styrkur frá rík- inu til sambandsins kemur í gegn- um þá en í öðru lagi að nálægð FRÍ við ÍSÍ er mikil, en FRÍ hefur skrifstofur við hliðina á ÍSÍ. Fengslin við UMFI er aðallega í gegnum ungmennafélögin um allt land. Einnig hefur verið góð sam- vinna við UMFÍ í sambandi við keppnin Reykjavík — Landið. En í heild er samstarf þessa aðila já- kvætt og vinsamlegt. Hver voru helstu verkefni sum- arsins? Helstu verkefnin voru í sam- bandi við þátttöku í mótum og mótahald. Þau mót erlendis sem við tókum þátt í voru, Evrópu- meistaramótið innanhúss, Norð- urlandakeppni kvenna en þar vannst eitt silfur, Norðurlanda- keppni unglinga og áttum við þar tvo Norðurlandameistara. Þá vannst eitt gull á Andrésar And- arleikum og síðan var það Kast- landskeppnin við Itali. Hérlendis bar hæst Kalottkeppnin og tókst sú keppni vel þrátt fyrir óhagstætt veður. Flestum er eflaust í fersku niinni að Island vann nú í fyrsta skipti bæði karla og kvennagrein- arnar. Þá má nefna Reykjavíkur- leikanna, Meistaramótin, sem bæði voru haldin í Reykjavík og uti á landi, Bikarkeppnina í I. II. og III. deild og Bikarkeppni ungl- •nga auk íjöldann allan af öðrum mótum um allt land. Hvað um aðstöðu og þjálfara- mál? Aðstaðan er ekki góð ef við ber- um okkur saman við t.d. hin Norðurlöndin, en fer batnadi og cr viðunandi á nokkrum stöðum. Það vill oft brenna við, þegar í- þróttavellir eru gerðir, að aðtaða Fyrir frjálsar íþróttir gleymist. Þjálfaramálin eru mikið vanda- mál og er það tvíþættur vandi. Það vantar fleiri vel menntaða og góða þjálfara til starfa og einnig er erfltt að fjármagna störf þeirra. FRÍ hefur tekið þá stefnu að ráða ekki landsliðsþjálfara og er það aðallega vegna fjárskorts. Fjármál FRÍ? Svava Grönfeldt UMSB. Fjárskortur er mikill hjá sam- bandinu og stendur hann flestu starfi fyrir þrifum. Og er ólíkt saman að jafna við hin Norður- löndin ef við berum okkur aftur saman við þá. Og ætti styrkur FRÍ miðað við höfðatölu að 6 faldast ef framlag ríkisins væri jafnt og hjá hinum Norðurlönd- unum. Nú starfsemin er fjár- mögnuð með styrkjum, auglýs- ingum og ýmiskonar fjáröflunar- leiðum. Að lokum, hvernig líst þér á framtíð frjálsíþrótta hér á landi? Eg lít mjög björtum augum á framtíðina. Fjöldi iðkenda fer sí- vaxandi og virðist vera nægur efniviður. Einnig er ánægjulegt hve áhuginn úti á landi hefur farið vaxandi, en það eru mun fleiri sem stunda íþróttina úti á lands- byggðinni heldur en hér á höfuð- borgarsvæðinu. Það hefursýnt sig að við erum á uppleið, árangur bestu manna fer sí batnandi og landsliðið er alltaf að verða betra eins og árangur sumarsins sýnir. En því miður þá eru fjárhags- vandræði mikil hjá FRÍ sem og íþróttahreyfingunni í heild. SKINFAXI 9

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.