Skinfaxi - 01.10.1980, Qupperneq 10
Ungmennasamband Norðurlanda NSU hélt
aðalfund sinn eða þing dagana 13.— 14. sept. sl. að
Bif'röst í Borgarfirði þetta er í fyrsta sinn sem UMFI
er gestgjafi ársþings NSU en í tengslum við þau er
jafnan haldin fræðsluráðstef'na fyrir leiðtoga aðild-
arsambandanna og starísmenn þeirra. Þingið sóttu
alls 37 fulltrúar að meðtöldum íslensku fulltrúun-
um.
Tore 0sterás flutti skýrslu stjórnar og gat helstu
viðburða á liðnu kjörtímabili stjórnarinnar en það
stendur í tvö ár. Meðal þess helsta má nefna 1979.
1. Norræn ungbœndaráðstefna á íslandi mars.
2. 4H búðir Danmörk júlí.
3. Norræn ungmennavika Finnland júlí
4. Starfsmannanámskeið 4H Noregur sept.
5. Norrænt meistaramót í plœgingu Noregur okt.
6. Nokkrar minni ráðstefnur ogfundir nefnda og
stjórna hinna ýmsu starfsþátta.
1980:
1. Landbúnaðarráðstefna Svíþjóð febr.
2. Ungmennavika Noregur júlí.
Lengra náði skýrslan ekki en við getum bætt
Arsþingi og fræðsluráðstefnu á Islandi í sept. ’80
við listann.
Stjórn NSU síðasta starf'stímabil var skipuð 7
mönnum en auk hennar 4 H nefnd, faglega nefndin
og n.k. allsherjarhefnd. Jóhannes Sigmundsson hef-
ur verið fulltrúi UMFI í stjórninni sl. 4 ár og hefur
hann setið fundi nefndanna eftir því sem hann hefur
getað og þá einkum í samfloti við stjórnarfundi.
Pálmi Gíslason og Sigurður Geirdal hafa í einu til-
felli mætt á stjórnar og nefndafundi, en það var
þegar verið var að undirbúa þing og námskeið á
Islandi.
Á aðalfundinum var auk skýrslna og framtíðar-
l
i i r
i—
L—l i
J. ... T T
T~ i—jji
Stjórn NSU talidfrá vmslri: Henry Gustavsson, Finnlandi; Torill Sigmundsson frá UMFÍ. Á myndina vantar Torsten Karlsson,
Aaen, Noregi; Tore 0sterás, formaður, Noregi; Karen Bjerre Svíþjóð.
Madsen, Danmörku; Karl Kring, Suður-Slesvík og Jóhannes
10
SKINFAXl