Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1980, Síða 25

Skinfaxi - 01.10.1980, Síða 25
Vísnaþáttur SKINFAXA Vísnaþátturinn hefur gert ítrekaðar tilraunir til að særa botna út úr vestfirðingum, en án árangurs. Þetta hefur þó orðið til þess að ég hef fengið ágæt bréf sem fúllyrða að upphafleg skoðun mín sé rétt, t.d. segir einn kunningi þáttarins, sem er afbragðs hagyrðingur, í bréfi til okkar ,,...en hinu er ég vel kunnugur, að fyrir vestan eru allir hagyrðingar betri en ég, bæði á Súg- andafirði og Onundarfirði,” og þá höfum við það. Alltaf berst þó- reytingur af botnum og hér koma nokkrir þeirra. Fyrripartur: Áfjörðum vesturfjörið er, farið mjög að dafna. j.S.: Enginn maður annan sér allt ífiski að kafna. Á.G.: Þótt Bergur ennþá bregðist mér botnum við að safna J. Hjartar: Aldreisuður ullt það fer því ungir vestra hafna. og hann bætir raunar við: Þar við fjöllin finna skjól fiskin sækja á miðin. Þó enginn þarna klæðist kjól þá er kvæðagerð ei liðin. Næsti fyrripartur var svona: Iþrótt skaltu iðka knár elli frammá daga. J. Hjartar: Uns að lokum liggur nár og lífs þíns endar saga. J.S.: Verður stundum vesœlt pár vísa eða saga. D.: Láta hressa lífsins tár lungu bœði og maga. Menn hafa því greinilega mis- munandi íþróttir í huga. Fyrripartur: Sumar líður senn er haust svona lífið gengur. J. Hjartar: Engafríða á ég raust er þó prýðisdrengur. J.S.: Set ég knörinn nú í naust naumast ræ ég lengur. P.G. Þýtur fram endalaust eða kannski lengur. I þetta sinn ætla ég ekki að senda ykkur neina fyrriparta, enda hefur ykkur ekki gefist mikill tími til að svara þessum, eða eins ogJ. Hjartar segir: I. okt. skal botninn berast í blaðinu er okkur tjáð. Hvernig má það góði gerast ígær það meðtók .. ósú náð. Vísnaþátturinn tekur gjarn- an á móti fyrripörtum til að skjóta að í næstu þáttum. Finnið góða fyrir mig, fyrriparta og sendið. MeS kveðju Asgrímur Gísloson. SKINFAXI 25

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.