Skinfaxi - 01.12.1980, Blaðsíða 21
Félagsmálanámskeið á Flateyri, yngstu þátttakendurnir voru J'yrir hádegi.
Jón og Sigurdur Geirdal
ekki nema rétt nafnið. Við crum
komin með grunnskólalög og það
er ekki nóg að hampa einhverju af
þeim og troða á hinu.
Þið voruð með sumarbúðir í
sumar?
Við höfum verið með sumar-
húðir undanfarið ár. \'ið byrjuð-
um með íáa fyrst, stóðum í hundr-
aöi í fyrra cn nú í sumar var aðeins
eitt námskeið. Það er bein aíleið-
ing af því hvernig grunnskólalög-
in eru framkvæmd hér. Við erunt
komin í hárða samkeppni við
iþróttafulltrúa ríkisins þar sem
iiann er að framkvæma silt skildu-
starf að ungmenni í sýslunni fái
sundkennslu. Sundkennslan fer
fram í sama mánuði og við erum
með sumarbúðirnar. \'ið crum að
keppa um sömu ungmennin
þannig að úr þessu verður aldrei
annað en óánægja.
Þetta hefur meira að segja haft
þær afleiðingar að íþróttasjóður
hefur ár f’rá ári minnkað framlag
sitt til sumarbúðastarfsins. Hann
byrjaði með 45% í styrk á móti
ÍSÍ og UMFÍ.'Nú síðast 1979 var
styrkurinn 28% og satt best að
segja liöfurn við vart haft geð í
okkur til að senda útfylltar skýrsl-
ur suður nú í ár. Því að horfa upp
á þá hörmung sem við búumst við
að fá frá íþfóttasjóði til þessara
starfa. Sundnámskeiðin hafa
sama uppá að bjóða og sumar-
búðirnar, íþróttir og góða kenn-
ara. Auk þess er 6 sinnum ódýrara
fyrir foreldra að senda barn á
sundnámskeiðin heldur en sum-
arbúðirnar. Þetta er í sjálfu sér
mikils virði og við ættum kannski
að draga okkur í hlé og lofa grunn-
skólunum að standa fram á sum-
ar.
Við erum uggandi um framtíð
sumarbúðanna á meðan þeirri
réttlátu beiðni okkar er syn jað að
við tökum að okkur sundkennslu
fyrir þá hreppa sem ekki hal'a not-
ið þeirra mannréttinda að hafa
sundlaug við sína skóla.
SKINFAXI
21