Skinfaxi - 01.12.1980, Blaðsíða 10
hreyfing þarf ríkisvaldið að skilja
þessa þróun og leggja miklu meira
fjármagn af mörkum en nú er
gert. Þegar starf hreyfingarinnar
kostar árið 1980 um þrjá milljarða
króna og ríkisvaldið leggur frá
innan við 10% afþeirri upphæð,
segir það sig sjálft að íþróttahreyf-
ingin getur ekki staðið við þær
skuldbindingar sem þjóðin ætlast
til af henni.
Hér er rætt um unglingavanda-
mál, cn með því að leggja íþrótta-
'hreyfingunni til meira fjármagn
og íþróttalega aðstöðu, þá liggur
það í augunt uppi að þetta vanda-
mál mundi minnka stórlega. Þó
íþróttahreyfingin eigi enga alls-
herjar patentlausn á. vandamál-
um æskunnar, þá segir það sig
Forseti ISl Sveinn Björnsson.
sjálft að hver sá unglingur sem ver
frístundum sínum lil hollra
íþróttastarfa fer ekki á ntis við
þann uppbyggjandi félagsskap
sem íþróttirnar veita.
Iþróttahreyíingin tekur við öll-
um sem hún getur, og gerir fyrir
þá það sem í hennar valdi stend-
ur, en það liggur í augum uppi að
nteð auknum íjárframlögum gæt-
um við gert mun meira og fyrir
miklu lleiri en við erum megnugir
1 dag.
íþróttahreyfingin vill stuðla að
því að allir landsmenn stundi
íþróttir á einn eða annan hátt, og
þessi viðleitni okkar hefur vissu-
lega borið árangur eins og sjá má
af aukinni þátttöku almennings í
ýmsum greinum,og nýjum þátt-
takendum í íþróttastarfinu og er
þar skemmst að minnast nýstofn-
aðra félaga og landssamtaka fatl-
aðs fólks.
7/7 að sinna svo viðamikilli
starfsemi þurfið þið auðvitað að-
stöðu og starfsfólk. Hvað viltu
segja okkur um þá hluti?
A skrifstofu Iþróttasambands-
ins í Laugardalnum eru limm
manns^ a.uk fræðslufulltrúa í
hlutastarfi. Þetta íölk vinnur að
eflingu og framgangi íþróttanna
með margskonar upplýsingantiðl-
un og gagnasöfnun og með sam-
ræmingu og skipulagningu á hin-
um ýmsu þáttum starfsins.
Að lokum \ il ég óska þess, að
íþróttahreyfingin haldi áfram að
stækka og blómgast og verði
áfram stærstu Ijöldasamtök þessa
lands. Eg hvet þá sem óska eftir
því að kynna sér íþróttastaríið eða
að taka þátt í því að snúa sér til
viðkomandi aðila innan íþrótta-
hreyfin'rarinnar.
Skinfaxi og við ungmennafé-
lagar þökkum Sveini fyrir spjallið
og óskum honum alls góðs í
áframhaldandi störfum hans fyrir
íþróttahreyfinguna.
Sig. Geirdal.
Óskum vibskiptavinum okkar
gleðilegra jóla ogfarsældar
á komandi ári.
Pökkum viðskiptin á liðnum árum.
Guðmundur Tyrfingsson
Lambhagct 32 Símar 1210 og 1410 Selfossi
10
SKINFAXI