Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1980, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.12.1980, Blaðsíða 3
SKINFAXI 6. tbl. — 71. órg. — 1980 ÚTGEFANDI: Ungmennafélag Islands. RITNEFND: Pálmi Gíslason ábm. Diðrik Haraldsson útg.stj. Sigurður Geirdal Finnur Ingólfsson Steinþór Pálsson AFGREIÐSLA SK.INFAXA: Skrifstofa UMFÍ, Mjölnisholti 14, Reykjavík — Sími 14317. SETNING OG UMBROT: Leturval sf. OFFSETPRENTUN: Sambandsráðsfundur UMFÍ bls. 4 Viðtal við Svein Björnsson forseta ÍSÍ — 8 Viðtal við Skúla Óskarsson — 12 Iþróttaviðburðir í Rangárþingi — 15 Leiðbeinendanámskeið ÆRR — 16 Viðtal við Jón Guðbjömsson — 19 Vísnaþáttur Skinfaxa — 25 HSK — knattpyrna — 27 Frá Landsmótsnefnd — 28 Forsföumyndin Islenskir lyftingamenn hafa getið sér gott orð að undanförnu bœði á innlendum og erlendum vett- vangi. Lyftingar eru til umræðu í þessu blaði og forsíðumyndin af Skúla Óskarssyni UÍA sem setti heimsmet í réttstöðulyftu. H ugarfarsbreyting er nauðsynlec) Nú, þegarstenduryllrá Alþingi gerðfjárlagafyrirárið 1981 og bæjar og sveitarstjórnir fara að vinna að fjárhagsáætlunum sínum, er ekki úr vegi að fjalla um stuðning þcssara aðila við íþrótta- og æskulýðsmál. Þegar útdcilt er því fjármagni sem til ráðstöfunar er hverju sinni er að mörgu að hyggja og sjaldan mögulegt að uppfylla allra óskir. Það er því oftast háð mati og hugarfari ráðamanna hversu mikið fé kemur í lilut hvers og eins sem eftir stuðningi leyta. Þó kann að vera að talsverðu ráði hversu ákaft menn biðja eða hafa aðstöðu til að beita þrýstingi. Beiðni ungmennafélagshreyfingarinnar um fjáframlög sér til handa er yfirleitt hófleg, fer ekki fram úr því sem auðveld- lega er hægt að uppfylla. Þetta á að sjálfsögðu við um rekstrar- framlög en ekki um kostnað við uppbyggingu íþróttamann- virkja, cn þau mál eru það stór í sniðum að tíma tekur að koma þeim í viðunandi horf. Hin beinu rekstrarframlög eru aftur á móti ekki það stór þáttur í fjármálum ríkis og sveitarfélaga að verulegu máli skipti þó að þau hækkuðu í það sem viðunandi væri. En til þess að stuðningur við frjáls æskulýðs- og íþróttafélög komist í æskilegt horf, þarf að verða hugarfarsbreyting hjá ráðamönnum, það verður að hætta að líta á framlög til þessara mála sem einhverja kvöð eða óhjákvæmilega styrki, heldur verða menn að hafa það hugarfar að hér sé um skynsamlega og arðbæra ráðstöfun á opinberu fé að ræða, sem skilar sér aftur til þjóðfélagsins. Engum ætti að blandast urn það hugur að öllugt ungmenna- og æskulýðsstarf hefur mikið uppeldislegt gildi í nútíma þjóð- félagi og slík starfsemi geti forðað ungmennum frá ýmsum „Hallærisplönum.” Einnig er í ungmenna- og íþróttasamtök- unum kjörið tækilæri fyrir liina f'ullorðnu að finna sér heil- brigðan starfsvettvang í frístundum sínum. Stuðla þannig að eigin heilbrigði og hreysti, vinna mcð æskunni og brúa þannig hið margumtalaða kynslóðabil. Ungmennafélagshreyfingin hefur sýnt það með sínu mikla og vaxandi starfi, sem er að talsvcrðum hluta ólaunuð sjálf- boðavinna, að henni er vel treystandi til að annast þennan mjög svo þýðingarmikla þátt þjóðlífsins. En til þess að áfram megi lialda og merkið sé hátt á lofti þarf til að koma aukinn og varanlegur fjárstuðningur opinberra aðila, sem bcst næst fram með hugarfarsbreytingu. Islandi allt. Björn Agústsson. SKINFAXI 3

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.