Skinfaxi - 01.12.1980, Blaðsíða 15
íþróttaviðburðir
í Rangárþingi
Rangæingamótið 1980.
Rangæingamótið fór fram á Hvolsvelli dag-
ana 23. og 24. ágúst sl. Framkvæmd mótsins
var í höndum Umf. Baldurs. Fyrri daginn
kepptu fullorðnir, en þann seinni 16 ára og
yngri. Tókust bæði mótin með ágætum. I-
þróttafólk af yngri kynslóðinni lét sig ckki
vanta. Fengu allir þátttakendur viðurkenn-
ingarskjal til minningar um mótið. Atta félög
tóku þátt í báðum mótum.
Veittir voru verðlaunapeningar fyrir þrjú
efstu sætin í hverri grein hjá þeim fullorðnu, en
fyrir l'yrsta sætið hjá þeim yngri. Umf. Baldur
varð stigaliæst á báðurn mótunum með nokk-
uð miklum yfirburðum. I keppni fullorðinna
hlaut félagið 154 stig. I öðru sæti varð Iþrótta-
félag Eyfellinga (Umf. Eyfellingur og Umf.
Trausti saman) með 71 stig og í þriðja sæti
Untf. Njáll með 64.5 stig. í keppni 16 ára og
yngri hlaut Umf. Baldur 306.5 stig. I öðru sæti
varð Umf. Þórsmörk með 144 stig og í þriðja
sæti Umf. Njáll með 139stig.
Fjallomótið.
6. september síðastliðinn var „Fjallamótið”
haldið að Skógum undir Eyjafjöllum. Er þetta
frjálsíþróttamót á milli nágrannafélaganna
Umf. Eyfellings A-Eyjafjöllum og Umí'.
I'rausta V-Eyjafjöllum. Keppt er í nokkrum
völdum greinum karla og kvenna.
Félögin hafa einnigoft reynt meðsérísundi.
Mót þetta á sér orðið nokkuð langa sögu og
hafa félögin skipst á um sigrana. Hin allra
síðustu ár hafa þó Austur Eyfellinga oftast
borið sigurorð af nágrönnum sínum, Vestur-
Eyfellingum. Úrslit á mótinu sem fram fór í
haust urðu þau, að Uml'. Eyfellingur varð sig-
urvegari hlaut 102 stig, en Umf. Trausti hlaut
41 stig. Stigahæsti einstaklingur mótsins varð
Þorbergur Albertsson Umf. Eyfellingi og
hlaut hann „Fjallaskjöldinn” fyrir. Stighæst
kvenna varð Bergþóra Astþórsdóttir Umf. Ey-
fellingi.
Orn Guðnason.
SKINFAXI
15